Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ruslpóstur
30.12.2009
Þingmenn standa á öndinni yfir tölvupósti sem hefur borist þeim í stríðum straumi í dag frá einhverjum gaurum á lögfræðiskrifstofu í Bretlandi. Lögfræðingarnir eru sennilega orðnir nokkuð hífaður eftir bjórkrúsirnar og eru að atast í vesalings þingmönnunum okkar og hafa gaman af. Nú svo er hinn möguleikinn fyrir hendi að hér sé á ferðinni snjall hakkari sem þess vegna gæti verið með aðsetur í Hádegismóum
![]() |
Búnir að fá tölvupóstana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Öreigarnir
29.12.2009
Smælingjarnir við Eyjafjörð fordæma aðförina miklu að sérréttindum sínum svona rétt fyrir Jól. Það heyrist hins vegar ekkert frá öryrkjum og öldruðum sem lepja dauða úr bláskel en víkingarnir miklu á feitum launum vilja meira og sérréttindi umfram aðra.
![]() |
Eyfirðingar fordæma afnám sjómannaafsláttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Maður ársins
29.12.2009

Heimsmeistaraþjóðin
28.12.2009
Eins og alltaf, stærst, best og gáfuðust. Hin eina og sanna montrassaþjóð sigrar á öllum skölum, alltaf. Og nú þurfum við ekkert að vera að röfla um höfðatölu. Verum stollt.
![]() |
Skuldugasta þjóð á byggðu bóli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Burt með Álfheiði
19.12.2009
Björn Zoëga forstjóri LSH er ekki bjartsýnn eftir aðra umræðu um fjárlög og það með réttu. Spítalinn fær enga leiðréttingu vegna gengisáhrifa á meðan á fjölmörgum stöðum í stjórnkerfinu er þetta leiðrétt. Stendur öllum á sama um framtíð spítalans? Hefur ráðherrann engan áhuga á sínum málaflokki, nennir hún ekki að sinna starfi sínu, eða er hún enn í draumheimi fyrir utan lögreglustöðina ? Heilbrigðiskerfið þarf annan ráðherra en Álfheiði Ingadóttur og það strax. Þesi kona ætlar að rústa LSH.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.12.2009 kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fréttabomba Moggans
18.12.2009
"Sveitarfélagið Garður keypti í dag kirkjujörðina Útskála af Kirkjumálasjóði". Afsakið ég er alveg að sofna.
![]() |
Garður kaupir Útskálajörðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samfylkingin opnar faðminn
17.12.2009
fyrir einum stærsta myrkarhöfðingja útrásarinnar, sem skildi eftir sig óbærilegan skuldaklafa á þjóðinni vegna IceSafe ruglsins. Sjálfan Björgólf Thor Björgólfsson. Það á að greiða götur hans vegna gagnavers á Suðurnesjum. Ég hélt að það væri ekki hægt að leggjast svona lágt. Þennan mann verður að útskúfa frá öllum viðskiptum eða starfsemi á Íslandi. Þetta er eins og að bjóða bankaræningja stöðu bankastjóra.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sveitarfélag hvað ?
16.12.2009
Lítill tangi með Bessastöðum og nokkrum húsum, en svo þarf auðvitað að byggja íþróttamannvirki fyrir milljarða og enginn skilur upp né niður í hvernig peningar geta gufað upp í vitleysu. Leysið þetta s.k. sveitarfélag upp og þeir sem titla sig sem stjórnendur eiga að sæta rannsókn fyrir embættisafglöp.
![]() |
Óvissa á Álftanesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar værum við stödd án víkinganna ?
16.12.2009
Meindýraeyðir með stjörnuljós úti í garði varð til þess að á annan tug þungvopnaðra sérsveitarmanna voru ræstir út. Það verður forvitnilegt að fylgjast með þegar stráklingar fara að sprengja kínverjana. Þá dugar ekkert minna en að senda skriðdreka á vettvang.
![]() |
Byssumaður reyndist meindýraeyðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Drápsæðið heldur áfram
14.12.2009
Í fjárlögum fyrir næsta ár fá refadrápsmenn 18 milljónir til að halda áfram ógeðslegri iðju sinni. Tala um forgangsverkefni.