Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þjóðrembuumræða um þessa martröð

Ýmsir bloggarar hafa verið duglegir að benda á hversu stórkostlegt það er að litla "fátæka" Ísland hafi verið fyrst á vettvang og þetta framtak myndi örugglega auka vinsældir okkar. En það var hópur óeigingjarnra, sem bauð sig fram, ekki til að afla sér eða þjóðinni vinsælda, heldur til að leggja hönd á plóg eins og hundruð annarra gera. Við sem heima sitjum getum sýnt raunverulegan stuðning með því að hringja í Söfnunarsímann 9041500.
mbl.is Er í fyrsta verkefninu á Haíti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var þá ástæðan

að koma stjórninni frá og setjast sjálfur í stólinn. Ekki seinna vænna að komast til valda til að koma hrunamönnum og þeim sem sköpuðu IceSafe skrísmlið undir verndarvænginn.
mbl.is Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klappstýran

Ekki er langt um liðið síðan hann var kallaður, "klappstýra útrásarinnar". Nú er hann þjóðhetja og hvers manns hugljúfi og hafinn upp til skýja. Hvað er svona geðsveifla kölluð innan geðfræðinnar ? Morbus Islandicus ?

Stórleikarinn snýr aftur

Birgir Ármannsson, stórleikarinn mikli sér að það fækkar í aðdáendahópnum þrátt fyrir stórkostleg tilþrif á sviðinu á Alþingi síðustu misserin. Nú vill hann hóa í áður óþekkta meðleikara utan úr heimi til að koma sér aftur hlutverk hins eina sanna og óumdeilda stórleikara, sem hann alltaf hefur verið.
mbl.is Uppbyggilegt að leita leiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefði verið hægt að hóa í mig

og ég hefði komist að nákvæmælega að sömu niðurstöðu og Már. En það voru einstaklingar sem vöruðu okkur við en á þá var aldrei hlustað og þurftu þeir að sitja undir fúkyrðaflaumi hrunadansara sem ætluðu sér alltaf að keyra allt í þrot, ræna og rupla með einbeittum brotavilja.
mbl.is Hefði átt að stöðva bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IceSafe holdi klætt

Á þjóðin og dómsvaldið ekkert vantalað við þessa menn? Svo virðist ekki vera.

krimmar_949990.jpg 

 

 


mbl.is Bjarni: Eigum aðra kosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan endurtekur sig

Nú eru allir þeir sem vara við neikvæðum afleiðingum vegna ákvörðunar forsetans úthrópaðir, sem föðurlandssvikarar og vitleysingjar. Nákvæmlega það sama gerðist þegar ýmsir málsmetandi menn vörðuðu við yfirvofandi bankahruninu á sínum tíma. Þá hafði þjóðremban náð stórkostlegum hæðum, en nú virðist hún stefna í enn hærri hæðir, þar sem sýndarveruleikinn einn ræður ríkjum en engin rökhugsun.
mbl.is Neikvæð umræða hentar ríkisstjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umfangið eitt og sér

sýnir hversu stórtækir glæpamennirnir voru í útrásinni varðandi bara einn banka. Öll siðmenntuð ríki hefðu komið í veg fyrir þetta. En ekki á Íslandi, sem varla getur lengur talist meðal siðaðra þjóða.
mbl.is Kröfur frá 111 löndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðumst gegn stórglæpamönnunum á nýju ári

Gefum þeim engin grið, útskúfum þeim, hirðum af þeim allt laust og fast, komum þeim undir lás og slá. Þetta verður verkefni ársins 2010. Þetta er áramóatboðskapurinn.

Riddarar ömurleikans

Hvers vegna þyrma yfir mig óendanleg leiðindi þegar milljarðamæringar í stjórnarandstöðu, Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð taka til máls á Alþingi árið 2009. Hvað varðar þá um um afkomu annarra sem ekki sitja í sömu gullskeið og þeir sjálfir ?
mbl.is Gögnum ekki haldið frá þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband