Sveitarfélag hvað ?

Lítill tangi með Bessastöðum og nokkrum húsum, en svo þarf auðvitað að byggja íþróttamannvirki fyrir milljarða og enginn skilur upp né niður í hvernig peningar geta gufað upp í vitleysu. Leysið þetta s.k. sveitarfélag upp og þeir sem titla sig sem stjórnendur eiga að sæta rannsókn fyrir embættisafglöp.
mbl.is Óvissa á Álftanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Víða eru vitleysingarnir í fjármálunum.

Hvað gerðist? Voru allir og allt farið að miða sig við laun forstjóra Kþ eða hvað?

Alveg á kláru að viðmiðunarhillan hækkaði af einhverjum völdum, allverulega.  Það sem manni þótti lúxus, bruðl og flottræfilsháttur, þótt næstu kynslóð "staðalbúnaður".

Eygló, 16.12.2009 kl. 20:20

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þeir stíga ekki í vitið, það á að svipta þessu fólki sjálfsforræði.

Finnur Bárðarson, 16.12.2009 kl. 20:21

3 Smámynd: Eygló

hvort það á!? Þetta fólk hefur svift íbúa fjárræði

Eygló, 16.12.2009 kl. 20:25

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

er ekki komin tími til að þú fáir sæti við hlið sérstaks saksóknara

Jón Snæbjörnsson, 16.12.2009 kl. 20:25

5 Smámynd: Eygló

Finnur ER aldeilis nú þegar alveg sérstakur saksóknari

Eygló, 16.12.2009 kl. 20:27

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jón, ég hef ekki kunnað við að nefna þetta sjálfur :)

Finnur Bárðarson, 16.12.2009 kl. 20:29

7 identicon

Ég stið Finn í stöðu aðstoðarmanns sérstaks saksóknara. Þá kæmist hreyfing á hlutina og gælpafurstarnir færu að titra og skjálfa. Finnur geturðu ekki byrjað á morgun ?.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 16.12.2009 kl. 21:19

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þú færð mitt atkvæði Finnur

Jón Snæbjörnsson, 16.12.2009 kl. 23:38

9 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Eiithvað hefur vantað í stærðfræðikunnáttuna ekki spurning.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 17.12.2009 kl. 00:41

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

fyrst staðan hjá þessu litla bæjarfélagi er svona slæm og skiptar skoðanir á því hvaða lausn er best er þá ekki ráð að setja á stofn Bæjarmálastjórn nokkurskonar Landsstjórn þar sem að kæmi fólk óðháð þessari ansk pólitík

hvíla sig á kjaftæðinu og vinna verkin sem þarf að vinna

Jón Snæbjörnsson, 17.12.2009 kl. 10:24

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Egló, Jón og Árni, ætla að hóa í serstakan og bjóða mig fram á morgun. Guðrún: Ef hún er verri en mín þá er hún nánast engin. Jón. Þetta er góð hugmynd, já þessi pólitík er að kæfa allt.

Finnur Bárðarson, 17.12.2009 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband