Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Látum sverfa til stáls gegn þjóðníðingum "útrásarinnar"

Glæpamenn útrásarinnar eiga að fá meferð við hæfi.

782.jpg

 

 

 


Er eitthvað að gerast ?

Unaðslegt ef kné er látið fylgja kviði, loksins. Hér gilda engin vetlingatök, grípið þá, hvar sem til þeirra næst þessum fulltrúum lægstu hvata í mannlegu eðli og frelsið þjóðina frá nærveru þeirra með því að setja þá bak við lás og slá.
mbl.is Lögregla flutti Sigurjón brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðareign til sölu

smarason.jpgÉg sá í dagblaði, að hús holdgervings mestu viðurstyggðar í mannlegu eðli, er til sölu. Þetta er hús við Fjölnisveg, sem Hannes Smárason telur sig eiga.

En ég er hvergi sáttur fyrr en þessi maður verður sviptur öllum sínum svo kölluðu eigum og verði stefnt fyrir dómstóla.


Hægri öfgaflokkurinn

652-220.jpgBjarni Benediktsson milljarðamæringur með meiru, hefur teymt flokkin inn á ysta væng hægri stjórnmála. Þessi flokur hefur að megin markmiði að koma auðlindum Íslands í hendur útvalinna gæðinga og flokksvina án endurgreiðslu.

Það er mikilvægt að allir þeir sem ekki eru sammála þesssari sjúklegu stefnu auðvaldsflokksins skrái sig á vefinn um vilja þjóðarinnar um að auðlindir Ísland eru sameign þjóðarinnar og heimti þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.


Ræstitæknirinn situr hjá

Atli Gíslason, hefur eytt meiri hluta starfsins sem þingmaður, að taka til til í bílskúrnum eða á lögfræðistofu sinni þegar brýn mál hafa verið til umfjöllunar á þingi. Þessi s.k. þingmaður bugast af gunguskap og taugaveiklun þegar kemur að því að taka afgerandi afstöðu um upphaf hrunsins og einkavæðingu bankanna og velur að sitja hjá. Hann flýr af hólmi eins og alltaf.

Bloggari vill verða forseti

Það ætti að vera öllum ljóst að Ögmundur Jónasson er löngu hættur sem stjórnmálamaður. Hann hefur ekki stigið í pontu á þingi síðan sautjáhundruð og súrkál. Hann bloggar þó nokkuð í miklum umvöndurtón um flest sem aflaga hefur farið eins og bloggara sæmir.

Þegar hann birtist á skjánum talar hann af þvingaðri yfirvegun og tillir fingurgómunum settlega saman, sem er afbrigði af handahnoði Ólafs Ragnars, og færir höndina mjúklega til hægri og vinstri til að vera öllum til hæfis og innleiðir predikun sína með hinni þrautreyndu setningu: "Staðreyndin er að sjálfsögðu sú..." . Að vísu hefur hann ekki enn ávarpað heimsbyggðina um þá staðreynd að Ísland springi í tætlur innan tíðar. En það má bíða fram að næstu túristavertíð. Í mínum huga stefnir Ögmundur bara á eitt, Forsetaembættið. Hann hefur alla taktana og verkfælnina sem til þarf .


Þegar allir eru fórnarlömb

skaðar ekki ekki að líta í eigin barm og spyrja sig af einlægni: Hef ég nokkurn tíma keypt of stórt og dýrt hús sem ég hafði ekki efni á, hef ég keypt dýran bíl sem ég hafði ekki efni á, fór ég í ferðalög sem ég hafði ekki efni á ? Hef ég tekið 100 % lán ? Svari hver fyrir sig.

Þetta er minn sparnaður

en nokkrir auðkýfingar ætla að ráðstafa honum í verkefni án þess að spyrja mig. Burt með þetta sjálfskipaða lið sem seilist í sameiginlegan sjóð okkar til þess eins að hagnast persónulega. Burt með samtök atvinnurekanda sem ráða þar lögum og lofum og vilja ráðskast með sparnað okkar.
mbl.is Framkvæmdir fyrir 30 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ölmusumaðurinn á þá vasapening eftir allt saman

Jóni Ágeiri munaði ekki um að punga út hátt í annan milljarð fyrir lummulega íbúð á Manhattan og allt úr slitnum og galtómum vösum. Þessi maður sem ætlaði að nærast á Diet Coke til æviloka til að ná endum saman.

Frábið mér jákvæðar fréttir

Koma svo taugaveikluðu bloggarar og keyrið þetta í kaf áður en lýðurinn fer að skynja ljós í myrkri
mbl.is Ísland af lista yfir áhættusömustu hagkerfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband