Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Blysförin gerði sitt

Hennar tími er þá loksins kominn, seint og um síðir.

Byrjar vælið

Ég gat ekki betur séð en Vilhjálmur væri að bresta í grát yfir óréttlæti heimsins gagnvart auðmönnum.
mbl.is Atvinnurekendur reiðir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notalegt

Ætli þau hafi haft áhyggjur af myntkörfulánum og lífeyrissparnaði ? 

gamalt_2.jpg

Bannið þetta líka

Nú er búið að banna súlustaði og dansmeyjar komnar á atvinnuleysisbætur. Er ekki rétt í kjölfarið að banna með öllu s.k. fjárfestingabanka? Þeir hafa margsannað skaðsemi sína með því að hneppa nánast alla þjóðina í ævilangan þrældóm.
mbl.is Straumur óskar eftir greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bólgur

Verðbólgusamdráttur, verðbólguþrýstingur á undanhaldi. Hvaða fjandans bólga er þetta eiginlega ?

mbl.is Verulegur verðbólgusamdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg af seðlum og bullandi góðæri

tordur.jpgÁ vef Viðskiptablaðsins er rætt við Þórð Friðjónsson forstjóra Kauphallarinnar:

"Nauðsynlegt er að losa fyrirtækin úr höndum ríkisins með einkavæðingu, jafnvel þó ríkið hafi þurft að taka þau yfir vegna þess ástands sem nú ríkir á mörkuðum. Þórður sagði á næstu mánuðum myndu skapast kauptækifæri á Íslandi og nægir peningar væru til í landinu til að fjárfesta".

Er ekki í lagi með manninn. Það var kanski rétt hjá Davíð að loka Þjóðhagsstofnun á sínum tíma til að losna við hann.


Við munum þurfa að borga með hærri sköttum

Þetta segir ríkisskattstjóri Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri í nýjasta tölublaði Tíunda, tímarits Ríkisskattstjóra:

„Við blasir að ef eigi endurheimtast faldar tekjur og eignir úr skattaskjólum og ef á skortir að eignir hinna föllnu banka standi á móti gerðum kröfum munu þeir sem enga ábyrgð báru á því hruni sem hér er orðið – almenningur allur og hefðbundinn atvinnurekstur landsmanna – þurfa að greiða aukna skatta vegna þeirrar afdrifaríku meðferðar fjármuna sem virðist hafa átt sér stað hjá nokkrum tugum manna sem flestir höfðu yfir sér huliðshjálm bankaleyndar og skattaskjóla,“ 

Almenningur og hefðbundinn atvinnurekstur landsmanna þarf að greiða aukna skatta ef faldar tekjur og eignir úr skattaskjólum endurheimtast ekki. 

Við viljum fá nöfn þessara manna. Ef ekkert endurheimtist viljum við réttlæti og hefnd. Handjárn, fangelsi og eilífa útskúfun úr íslensku samfélagi.


Úff, þar fór það

Hvað á maður eiginlega að dunda sér við núna? Fara á Kardimommubæinn í hundraðasta skipti?
mbl.is Ísland ríður á vaðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ansans

Ég vissi það, bara smámál, fjárfestu of mikið fyrir mistök. Svona eins og þegar maður alveg óvart kaupir 10 milljóna króna jeppa sem maður á ekki fyrir. Bara af því að maður var staddur í Holtagörðum fyrir mistök.  Shit happens.
mbl.is Segja sjóðinn hafa farið út fyrir heimildir fyrir mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nenna ekki að vinna ?

Ég skil ekki í forseta Alþingis. Hvenær fékk hann þá hugmynd að þetta væri vinnustaður. Þetta er dvalarheimili.
mbl.is Þingmenn mæta illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband