Morgunblaðið afhjúpar sannleikann

Á forsíðu blaðsins rak ég augun í þessa frétt: "Tölur ríkisskattstjóra sýna að á Íslandi er hópur fólks sem er mjög vel efnum búinn". Hvað mig varðar kom þessi frétt eins og þruma úr heiðskýru lofti. Það er eins gott að hafa allsherjargoðann í Hádegismóum til að segja okkur hinum óupplýstu hvað er um að vera í þessu þjóðfélagi. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Ja hver skrambinn, segðu Finnur,  þetta eru aldeilis fréttir.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 13.11.2009 kl. 21:13

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég kom from the maountains :) Jenný

Finnur Bárðarson, 13.11.2009 kl. 21:52

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hélt hann að hann væri að uppgötva hjólið, kom ekki mér á óvart, jedúdamía búin að vita þetta frá örófi alda

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.11.2009 kl. 14:24

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mig hafði lengi grunað þetta Milla að það væru einhverjir þarna úti sem hefðu aura :)

Finnur Bárðarson, 14.11.2009 kl. 16:28

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Á ég að segja þér fréttir, það eru sko ekki útrásarvíkingarnir sem eiga þá.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.11.2009 kl. 16:55

6 identicon

Sæll, Finnur.

Ég verð að segja það satt að ég fékk mig ekki til að fjalla um þetta, mér finnst þetta svo " Mystery" mál í allri KOLLSTEYPUNNI.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 17:55

7 Smámynd: Kama Sutra

Já, það er nett áfall að sjá þetta svart á hvítu.  Svo er þessu skellt svona framan í mann, algerlega óundirbúið...

Kama Sutra, 14.11.2009 kl. 19:05

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Kama sutra: Ég kom af fjöllum, vissi ekki neitt er þorandi að segja upp Mogganum ?

Finnur Bárðarson, 14.11.2009 kl. 22:11

9 Smámynd: Finnur Bárðarson

KOLLSTEYPAN Þórainn er orðið

Finnur Bárðarson, 14.11.2009 kl. 22:12

10 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

næst segja þeir okkur að kalt sé í norðanátt

Brjánn Guðjónsson, 15.11.2009 kl. 17:48

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er sem sagt útilokað að hætta að vera áskrifandi að Mogganum Brjánn. Annars veit maður ekki sitt rjúkandi ráð.

Finnur Bárðarson, 16.11.2009 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband