Á alþýðumáli

Tapið upp á 8,6 miljarða er skýrt á kjarnyrtu alþýðumáli til að tryggja að allir skilji örugglega: "Tapið liggur í því að stöðustærðir sem vextir reiknast af hafi lækkað mikið á milli ára". Ég vissi það.
mbl.is Seðlabankinn tapaði 8,6 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Best fyrir bankann að sem fæstir skilji. Gömul tækni sem reynst hefur vel til blekkinga.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 17:20

2 Smámynd: Kjartan Birgisson

Það er alveg ótrúlegt hvað STÖÐUSTÆRÐIR hafa lækkað á milli ára.

Kjartan Birgisson, 17.4.2009 kl. 17:22

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sko ef maður miðar við þá stöðu sem var á á fyrsta ársfjórðungi 2008 þegar stærðin hafði lækkkað umfram stöðuna sem hafði þá hækkað nokkuð ef frá eru talin sú lækkun........

Finnur Bárðarson, 17.4.2009 kl. 17:27

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Miðast það við núvirði eða nafnvirði eiginfjárvísitölu og hnattstöðu Sauðanesvita á háflóði?

Guðmundur Ásgeirsson, 17.4.2009 kl. 18:21

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

He, he, he Guðmundur, snilld :)

Finnur Bárðarson, 17.4.2009 kl. 18:25

6 identicon

Eins og maðurinn sagði...ég skal segja þér hvað stöðustærðir eru ef þú segir mér fyrst hvað verg þjóðarframleiðsla er!

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 19:10

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Einmitt hvað er djö.. verga kjaftæði :)

Finnur Bárðarson, 17.4.2009 kl. 19:26

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Verg = brúttó = gross = total (þegar allt er tekið með í reikninginn) Í tengslum við þjóðarframleiðslu þýðir það "fyrir afskriftir fjármagnsliða".

Andstæðan er "nettó" sem margir kannast við. Til að skilja mismuninn er best að taka dæmi. Brúttóþyngd vöru er: varan + umbúðir + fylgihlutir ef einhverjir eru (allt reiknað með). Nettóþyngd er hinsvegar eingöngu varan sjálf án umbúða og fylgihluta. Þyngd á matvörum í sölupakkningum er t.d. gefin upp svona, þú kaupir semsagt 500gr (net weight) af nautakjöti svo dæmi sé tekið, og þá eru umbúðirnar ekki vigtaðar með.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.4.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband