Ruslpóstur
30.12.2009
Þingmenn standa á öndinni yfir tölvupósti sem hefur borist þeim í stríðum straumi í dag frá einhverjum gaurum á lögfræðiskrifstofu í Bretlandi. Lögfræðingarnir eru sennilega orðnir nokkuð hífaður eftir bjórkrúsirnar og eru að atast í vesalings þingmönnunum okkar og hafa gaman af. Nú svo er hinn möguleikinn fyrir hendi að hér sé á ferðinni snjall hakkari sem þess vegna gæti verið með aðsetur í Hádegismóum
Búnir að fá tölvupóstana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þráinn Jökull Elísson, 30.12.2009 kl. 17:25
Mig grunar að einhver leki upplýsingum. Því sá ruslpóstur sem ég fæ er mestmegnis tilboð á getuleysislyfjum, limalengingarlyfjum og megrunarlyfjum. Mig grunar að einhver hafi sent nektarmyndir af mér til þessa aðila.
Offari, 30.12.2009 kl. 17:54
Ég er að fá samskonar póst Offari, veit ekki hvers vegna þessir Viagra menn hafa svona risa áhuga á mér.... eða hvað :) Trúlega hef ég sömu skýringu og þú. Maður er greinilega komið á netið með það heilagasta
Finnur Bárðarson, 30.12.2009 kl. 18:23
Er ekki til eitthvað Viagra sem stækkar heilann í alþingismönnum?
axel (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.