Burt með dekrið

LSH berst í bökkum við að annast sjúklinga vegna fjárskorts. Á meðan er lagt ofurkapp á að halda við tilgangslausum sendiráðum Íslands víða um heim. Að sjálfsögðu vill Össur eiga mikið undir sér og hafa stóran flokk manna á ofurlaunum við vínsmökkum og sjálfsdekur. Grunnviðir samfélagsins eins og sjúkrahús eru í hans huga hégómi einn miðað við drauminn um STÓRÍSLAND. Hugmynd Styrmis Gunnarssonar um stórkostlega fækkun á þessum kokteilstofnunum er löngu tímabær.
mbl.is Læknaráð lýsir áhyggjum af sparnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ansi hræddur um að Össur hafi smitast af stórmennskubrjálæði hennar Ingibjargar Sólrúnar enda bestu vinir og umgangast mikið. Er ekki til eitthvað meðal/lyf fyrir þetta pakk?.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 20.11.2009 kl. 21:51

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ekki gleyma Árni að Davíð skipaði flesta sendirherra fyr og síðar. En 3-4 sendiráð er nóg

Finnur Bárðarson, 20.11.2009 kl. 21:55

3 identicon

Já já en það breytir því ekki að það er í höndum Össurar að fækka vínsmökkurunum eins og þú kallar þetta snobbpakk réttilega.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 20.11.2009 kl. 22:00

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þarf ekki að fara að "vopnast"

Jón Snæbjörnsson, 20.11.2009 kl. 22:10

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jón það fer að styttast í það

Finnur Bárðarson, 20.11.2009 kl. 22:59

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er málið ekki einfalt?

Er ekki spurningin einfaldlega þessi; hvort viljum við að lögð veði niður ein deild á sjúkrahúsi hér heima eða sendiráð út í heimi?

Ég þykist vita að starfsmenn viðkomandi sendiráðs muni velja sendiráðið umfram sjúkrahúsið en þeir verða vart mikið fleiri, eða hvað?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.11.2009 kl. 02:26

7 identicon

Sæll Finnur.

Allt sem viðkemur Utanríkisráðuneytinu er í  felum enda er verið að koma undan á hljóðlátan hátt fjármunum og það miklum, ti þess að geta staði undir undirbúningskostnaði að aðildar umsókn Jóhönnu og Össurs og hinna sem eru í kjölsoginu.

Skömm að svona leyniverkum.

 Ég hefði bara ekki trúað þessu en nú sé ég verkin þó ég sjáí ekki hugmyndasmiðina !

Kveðja. 

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 03:44

8 Smámynd: Eygló

Hvað með leyniþjónustu Íslands í Keflavík? Oftast kallað eitthvað annað.

Þótt ég sé hjartanlega sammála ofanrituðu þá má spara víða innan heilbrigðiskerfisins. Þetta marga smáa er ekki sparað heldur lokað deildum til að sýna fram á alvarleikann!

Eygló, 21.11.2009 kl. 04:33

9 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sendiráð versus spítali = aðrir peningar ekki sama deild og ekki sami ráðherra, þannig er þetta hér hjá okkur - forgangsröðun vantar gjörsamlega - heilbrigð skinsemi ætti að vera eins og getið er hér fyrir ofan hjá bloggurum spítali (umhyggja) er meira viðri en sendiráð (vínboð)

þannig er það nú í stórum drátttttum

Jón Snæbjörnsson, 21.11.2009 kl. 11:04

10 Smámynd: Finnur Bárðarson

Takk öll fyrir athugsemdir. Það er bara þetta sem ég þoli ekki eins og þið mörg bendið á að heilbrigð skynsemi ræður ekki för þegar þarf að forgangsraða.

Finnur Bárðarson, 21.11.2009 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband