Dvalarheimili
9.8.2009
Seðlabankinn hefur alltaf verið dvalarheimili fyrir afdankaða stjórnmálamenn. Hæfni í einhverju skiptir engu máli. Hvað heilvita þjóð hefði t.d. skipað fjárglæframanninn Finn Ingólfsson seðlabankastjóra ?
![]() |
Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:04 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Bloggvinir
-
jennystefania
-
skagstrendingur
-
snjolfur
-
svarthamar
-
jonsnae
-
egill
-
offari
-
saemi7
-
icekeiko
-
kamasutra
-
muggi69
-
hildurhelgas
-
sveinnelh
-
zeriaph
-
jaherna
-
gisgis
-
jenfo
-
sleggjudomarinn
-
vistarband
-
gun
-
hreinn23
-
svanurg
-
brjann
-
gustichef
-
fridust
-
fridaeyland
-
fridabjarna
-
tara
-
gudruntora
-
kreppan
-
kreppukallinn
-
ace
-
thj41
-
skessa
-
rutlaskutla
-
nimbus
-
baldher
-
skrilllydsson
-
gattin
-
jakobk
-
annaeinars
-
disdis
-
himmalingur
-
gudrunkatrin
-
larahanna
-
gudmunduroli
-
amman
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
martasmarta
-
fhg
-
agustg
-
birgitta
-
tryggvigunnarhansen
-
baldurkr
-
fun
-
salvor
-
kreppuvaktin
-
olinathorv
-
imbalu
-
gelin
-
gumson
-
vefritid
-
vilhjalmurarnason
-
valdimarjohannesson
-
flinston
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Engin! Jú Ísland, en við erum að vísu ekki heilvitar! Í það minnsta hálfvitar!
Himmalingur, 9.8.2009 kl. 15:20
Sammála Hilmar, get sætt mig við orðið hálfviti.
Finnur Bárðarson, 9.8.2009 kl. 15:25
"Vaxtaflónið" var viðurnefni sem Finnur fékk í stól Seðló, þrátt fyrir að hann hefði próf upp á "meinta" sérþekkingu.
Hugsa að skipulag Seðlabankans um áraraðir hafi verið svona einhvers konar útibú frá Alþingi, öldungaráð. Þar sem brottfluttir Alþingismenn settust í stjórn og bankastjórn í bankanum, þó með fulltingi manna með prýðilega sérþekkingu.
Sérþekking hinna bankastjóranna, náði hins vegar ekki í gegnum þykkan skráp Davíðs, enda nennti hann ekki að hlusta á þá, á ögurstundu Íslands s.l. haust.
Held samt að hneykslun mín yfir ráðningu Seðlabankastjóra fyrr á tímum hafi náð hámarki, þegar eftirlaunatrésmiðurinn Steingrímur Hermannsson, settist í þennan stól, handlama eftir bílskúrshobbíið.
Jenný Stefanía Jensdóttir, 9.8.2009 kl. 16:06
Steingrímur lýsti því síðar að hann gerði ekkert annað en að spila golf í vinnutímanum. Finnur var örugglega að undirbúa þjóðarrránið. Þetta er alveg ótrúlegt kerfi.
Finnur Bárðarson, 9.8.2009 kl. 16:09
Davíð er besta skinn.
Offari, 9.8.2009 kl. 16:16
Veit ekkert um skinnið sem er á honum en er lítið hrifinn af innvolsinu.
Finnur Bárðarson, 9.8.2009 kl. 16:25
Og þessi náungi hefur það í dag huggulegt á ofureftirlaunum og kennir öllum um ábyrgðarleysi í fjármálastjórnun nema sjálfum sér.
Hvernig getur svona hrópandi óréttlæti viðgegngist.
Afhverju fær þessi maður yfirleytt að vera í friði.
hilmar jónsson, 9.8.2009 kl. 18:30
viðgengist,,for satan....
hilmar jónsson, 9.8.2009 kl. 18:30
Að vera hálfviti Finnur er auðvitað afstætt. Að vera hálfviti við hliðina á Davíð Oddsyni er nú þó nokkuð svo ekki sé nú talað um enn meiri vitringa frjálshyggjunnar.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.8.2009 kl. 18:35
Talandi um skinn, ég sé fyrir mér skinnið af honum spýtt á hlöðuveggin, en alveg verðlaust því miður.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.8.2009 kl. 18:39
Nafni þinn Ingólfsson er einn glæsti sonur sem þessi þjóð hefur alið. Það er lygi að hann sé holdgervingur græðgisvæðingarinnar á Íslandi. Hreinn og beinn er hann, glæstur leiðtogi í pólitík, réttsýnn, heiðarlegur og umfram allt kann hann að fara með fjármuni annarra og þá sérstaklega þeirra sem áttu fjármuni/eignir í Samvinnutryggingum (alas Gift). Finnur er ekki heldur táknmynd um spillingu í vina- og kunningjasamfélaginu á Íslandi. Hann á margt góðra hrossa og bújörð einhvers staðar sem hann hugsar um af alúð. Var hann ekki búinn að fá Fálkaorðuna fyrir störf í þágu almannaheilla?
Guðmundur St Ragnarsson, 9.8.2009 kl. 23:26
Hljómar eins og góð mynningargrein Guðmundur :)
Finnur Bárðarson, 10.8.2009 kl. 10:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.