Leitað á eignarhaldsheimilum

smarason.jpgEinn skuggalegasti gamblarinn meðal fjárglæframanna útrásarinnar, Hannes Smárason, sætir nú húsrannsókn vegna, hugsanlegra, mögulegra, ekki ólíklegra eða jafnvel líklegra grunsemda um skattalagabrot. Hvar var leitað: Jú á heimilum hans að Fjölnisvegi 9 og 11 (dugar ekkert minna en tvær hallir fyrir slíkan athafnamann) en hann hefur skilgreint heimili sín sem eignarhaldsfélög. Ekki fylgir sögunni hvort einkaþjónar Hannesar voru einir heima eins og þegar húsleit var gerð hjá Ólafi Ólafssyni hér um daginn. Það vekur veika von þegar farið er að drösla þessum gaurum fram úr skúmaskotum sínum, fram í dagsljósið.
mbl.is Efnahagsbrotadeild með húsleitir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband