Engin slagsmál í Kastljósi
17.3.2009
Kíkti á Kastljósið í gær. Tryggvi Þór úr Sjálfstæðisflokki og Sigríður Ingibjörg úr Samfylkingu voru að ræða efnahagstillögur Framsóknarflokksins um að færa niður skuldir um 20 % . Það var kanski ekki innihaldið sem vakti mesta athygli mína heldur framkoma þeirra tveggja.
Þurfti að klípa mig tvisvar í handlegginn til að sannfærast um að þarna væru tveir stjórnmálamenn á ferðinni. Engin hróp, engin frammíköll, bara afslappaðar málefnalegar samræður. Hugsaði eitt augnablik hvernig þetta hefði verið ef t.d. Árni Páll og Birgir Ármannsson hefðu verið þarna: Leðjuslagur óþroskaðra götustráka.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já þetta voru málefnalegar umræður og bæði sýndu hinum tillitsemi og voru ekkert að grípa fram í hvort fyrir öðru, eins og alltof algengt er í svona þáttum.
Jakob Falur Kristinsson, 17.3.2009 kl. 15:19
Kanski er vonarglæta þrátt fyrir allt
Finnur Bárðarson, 17.3.2009 kl. 15:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.