Nóg að gera hjá Álfheiði

Það er ekki kjaradeila unglækna sem veldur ráðherranum áhyggjum. Það er ekki niðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu heldur. Nei það er embætissmaður sem vildi kynna sér málið ofan í kjölinn sem hún hefur áhyggjur af. Það hefur alltaf verið einkenni gangslausra yfirmanna að taka fólk á teppið af þegar þeir ráða ekki við hið faglega verkefni sem þeim er ætlað að sinna.
mbl.is Ráðherra ætlar að áminna forstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas H Sveinsson

Er það ekki stórkostlegt að ráðherfan skuli snupra embættismanninn fyrir að vanda til verka, einfaldlega af því hún veit að  hún hefur hugsanlega verið að gera vitleysu. Þarna er komið dæmi um hvernig fólk hegðar sér þegar því er falið að vinna störf sem það veldur ekki.

Tómas H Sveinsson, 3.4.2010 kl. 15:00

2 identicon

Hún er náttúrlega kol klikkuð þessi kerling. Ótrúlegt að nokktum skyldi detta í hug að gera þessa kexrugluðu kerlingu að ráðherra.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 15:04

3 Smámynd: Benedikta E

Skot í markið hjá þér Finnur - það gæti þrengt að kerlingunni - hún reiknaði ekki með gagnsókn fyrir opnum tjöldum.

Benedikta E, 3.4.2010 kl. 15:05

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Steingrímur Ari, praktíserar þarna hluti, sem eru fullkomnlega eðlilegir, vandvirkir og mættu vera til eftirbreytni víðar.

Frussukennd og fljótfærnisleg lög, sem skortir nánari útfærslu á framkvæmd hafa leitt til skelfilegra afleiðinga í þjóðfélaginu.

Hér leitast forstjóri við að útfæra og úthugsa "hvað ef" tækni og leitar ráða hjá þeim sem eftirlit eiga að hafa með framkvæmd, til þess að vera viss í sinni sök.

Ráðherra hyggst áminna hann fyrir "vandvirknina" hvort segir það meir um ráðherrann eða Steingrím Ara.

Annars er löngu tímabært að tannlækningar barna verði ekki háð efnum foreldra, það er beinlínis brot á mannréttindum.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 3.4.2010 kl. 15:26

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2010 kl. 15:37

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nákvæmlega Tómas. Benedikta og Ómar: ég er rosalega ósáttur við þennan ráðherra. Jenný: Ég þekki Steingrím vel og hann má ekki vamm sita og stál heiðarlegur þessi ráðherra er orðinn mikið vandamál. Takk fyrir broskallinn Ásdís :)

Finnur Bárðarson, 3.4.2010 kl. 15:45

7 Smámynd: Sigurður Helgason

Hann er sem sagt blár í gegn,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Góður maður það

Sigurður Helgason, 3.4.2010 kl. 15:51

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sigurður: Steingrímur er sjálfstæðismaður sem ég er ekki en það skiptir ekki máli. En held að einmitt það fari í taugarnar á ráðherra.

Finnur Bárðarson, 3.4.2010 kl. 16:09

9 Smámynd: Sigurður Helgason

Sem ég er líka og það skiptir öllu burt með kerlu

Að halda að einkvað skipti meira máli er guðlast,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Sigurður Helgason, 3.4.2010 kl. 17:07

10 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég held að ráherra líki bra ekki frumkvæði hans í þessu máli. Yfirmenn geta verið viðkæmir.

Finnur Bárðarson, 3.4.2010 kl. 17:10

11 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

það á víst að kólna en hlýnar svo aftur

Jón Snæbjörnsson, 3.4.2010 kl. 21:40

12 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er víst gangurinn Jón :)

Finnur Bárðarson, 3.4.2010 kl. 22:16

13 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Undirritaður er líka sjálfstæðismaður - ég hef "lent í" Steingrími Ara - ég var ósáttur við niðurstöðuna en hann hélt fast við reglugerðir og lög og útskýrði hlutina fyrir mér - mjög sáttur við hans vinnubrögð en mörgu mætti breyta í laga og reglugerðabákninu í TR.

Stel yfirlýsingunnni ( fyrirsögninni ) hjá Jenný

                 VÍTAVERÐ VANDVIRKN

Ólafur Ingi Hrólfsson, 5.4.2010 kl. 02:57

14 Smámynd: Auður Matthíasdóttir

Líst ekki á viðbrögð Álfheiðar. Hún virðist algjörlega hæfileikalaus stjórnmálamaður, sem ætti alls ekki að vera á þessu plani.  Starfsmaður á plani þarf að vera sveigjanlegur og kunna að hlusta. Og vera á meðal fólks en ekki langt í burtu frá því.  Vandvirkni og agi í vinnubrögðum  hlýtur að vera virðingarvert.  Þessi ráðherra er vonandi á leið út úr ráðuneytinu.  SEM FYRST.

Auður Matthíasdóttir, 6.4.2010 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband