Ljúkum kreppunni strax
29.5.2009
Ég er alveg búinn að fá nóg af þessari kreppu. Kreppu sem enginn vill losa okkar undan, ekki einu sinni stjórnvöld. Eftir að að hafa leitað fanga víða m.a. í bloggheimum blasir lausnin við: Lækka skatta, hækka laun, skapa þúsundir nýrra starfa, auka útflutning, stórauka hvalveiðar, skrúfa niður verðbólguna, færa vexti niður í 0%, afskrifa öll lán og afnema verðtryggingu. Af hverju vilja stjórnvöld ekki sjá þessar einföldu lausnir? Íslendingar hljóta að geta fixað þetta allt á einum degi ef Guði tókst að skapa heiminn á sjö dögum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:47 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Finni minn.
Ég slæst í för með þessari tillögu. Stuðningsmaðuir NR.1
Kær kveðja Óþrjótandi gleði og óþrjótandi kærleikur.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 16:03
Þér verður ríkulega umbunað Þórarinn fyrir að vera 1. stuðningsmaður :)
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 16:05
Má ég vera númer 2 ?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 16:23
fæ kanski að hanga í "skottinu" á Baldri sem númer 3
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 16:26
Velkominn Baldur þér verður líka umbunað ríkulega, þú gætir t.d. strax farið að kíkja á nýtt golfsett de Luxe :)
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 16:27
Í röðina piltar, fyrstir koma fyrstir fá. Þið eruð Grand de Luxe klassanum.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 16:28
Maður sem hefur ekið Trabant de Luxe lítur náttúrlega ekki við öðru golfsetti en de Luxe.
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 16:32
Hér er kominn vísir að nýrri útrásargrúppu. Jón fram með bátinn, Baldur í stafni og vísar veginn. Þórarinn sér um útreikningana og ég niðri í lúkar með kampavínið og gullduftið ofan á brauðið.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 16:33
Ég var að því kominn að munstra mig inn þegar ég rak augun í það hver ætti að vera í stafni og vísa veginn.
Nú legg ég bara hendurnar fram á borðið og segi eins og maðurinn forðum þegar hann skýrði frá strandinu: Guð blessi Ísland!
En auðvitað eru þessar nýju tillögur þínar Finnur um viðreisn efnahags - og atvinnulífs þjóðarinnar óbilandi.
Og auðvitað dauðlangar mig í kampavínið.
Árni Gunnarsson, 29.5.2009 kl. 16:56
Nei, ég vil heldur sitja aftur í skut og kyrja ættjarðarljóð.
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 16:56
Við sjanghæjum Árna eins og gert var í gamla daga þegar vantaði háseta. Hann skrúbbar dekkið og ber í okkur kaffi og kruður.
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 16:58
Sammála þessari leið, ég vil líka auglýsa eftir flinkum krísustjórnanda og rífa okkur upp úr þessu.
Legg líka til að þeir sem vinna hörðum höndum 12 tíma eða meira á dag fái skattaafslátt hef reyndar enga hugmynd um hvernig hægt væri að fylgjast með því.
Þóra Guðmundsdóttir, 29.5.2009 kl. 16:59
Kona, farðu niður og brasaðu eitthvað oní áhöfnina, til hvers heldurðu að þú sért hérna?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 17:02
Málið er leyst Árni, Baldur fer aftur í skut og þú fram í. Gott að fá þig um borð Þóra og auðvitað fá allir að vaða í kampavínið en gullflögurnar eru búnar.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 17:10
Flott áhöfn,, held það hafi verið MS Skjaldbreið sem strandaði eða tók aðeins niður i Eyjafirðinum i kringum 1970, í sjórétti eru margir úr áhöfn kvaddir til "vitnis" td hann Bjössi "elska" um ástæðu strandsins í sjóréttinum kom fram hjá Bjössa "elsku"
Bjössi "elsku" svaraði dómaranum í sjórétti er sá síðarnefndi spurði Bjössa "elsku" hvort hann hefði einhverja hugmynd um hvað gæti hafa valdið strandinu, svarið: of lítið vatn undir skipinu "elskan" mín
svona er sennilega ástandið hjá okkur í dag, MS Skjaldbreið var dreginn af strandstað og vonandi tekst okkur að draga "okkar" skip á frían sjó á ekki svo löngum tíma
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 18:47
Var það ekki þá sem stýrimaðurinn ruglaðist á gráðunum? Tók 30° fyrir 330° eða eitthvað í þeim dúr.
Vinstri stjórnin er líka rugluð í gráðunum og á ekki að stýra skipi?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 18:53
Einmitt Baldur gráðurnar ;) allavegana vantaði vatn undir skipið svo það flyti - erum við ekki að nálgast það að slæða botninn frekar, svona eins og Robbi vinur í Mallorka í den, vildi purfa sjóskíð aftani ofur-spíttbát, og náttúrulega datt hann, vildi þó ekki sleppa takinu á enda búinn að borga í topp og drógst níður á botn á 30 sjómílum og stórskemmdi þessi líka fínu veiðisvæiði fyrir heimamenn.
Jú nálgumst við botninn sem verður slæddur
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 19:11
Jæja Jón kominn um borð og stýrir og mér er létt. Er að sækja um svissneskan ríkisborgararétt fyrir okkur öll.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 19:21
Fallegt í Sviss, var ekki hún Heidi litla það ásamt afa sínum - nú og svo allt súkkulaðið maður hojaaaa
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 19:28
það = þar
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 19:29
Ég ætla ekki að vera taglhnýtingur á skipinu, annað hvort verð ég skipherra (skipherfa skv. Stormsker) og þið þjónustið mig á alla enda og kanta strákar og við kaupum meira af gullflögum út í kampavínið fyrir ríkisfé, annars verð ég ekki memm. Hvað segið þið um ms. skutla?
Rut Sumarliðadóttir, 29.5.2009 kl. 19:29
Rut þó! Kona á þínum aldri ætti nú að þekkja betur stöðu kvenna um borð. Niður í lúkarinn stelpa og beint á kabyssuna!
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 19:32
man eftir tveim á fiksibát sem voru á sitthvorri vaktinni en notuðu sömu tennurnar
nú þarf að spara
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 19:34
er annar kom upp úr lúkarnum snaraði úr sér tönnunum, hinn tók við rak upp í sig, sleikti góminn hmm nú "saltkjöt" í matinn
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 19:36
Rut má vera með en það er Ólafur Ólafsson sem er græja ríkisborgarréttinn fyrir mig, við erum í fínu bandi eftir að hann kenndi mér trixið aða verða ríkur án þess að þurfa að vinna.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 19:38
Sömu tennurnar engar áhyggjur Jón þeir eru með gulltanngarða í Sviss
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 19:40
En hvers vegna til Sviss? Ekki siglum við þangað. Hefurðu eitthvað á móti Gulleyjunni?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 19:58
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 29.5.2009 kl. 20:29
Alltaf fjölgar stelpunum um borð. Verðum við ekki að fara að setja einhverjar reglur?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 20:34
Sviss, hafið þið keyrt fjallvegina þar? Úff, vestfirðir hvað.
Baldur, skamm, skamm aldrei að tala um aldur innan um svona fínar dömur eins og mig!
Rut Sumarliðadóttir, 29.5.2009 kl. 20:36
Nýtt útrásarævintýri?
Maður er nú farinn að þekkja þetta -aðgangur ókeypis en síðan þarf að borga sig út!.
Ólafur Eiríksson, 29.5.2009 kl. 20:56
Rut, elskan mín, ég meinti nú bara að þú ert komin á giftingaraldurinn
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 21:10
Þetta fer að verða flókið Baldur, og Ólafur það er en nýtt ævinýri í augsýn fyrir útvalda .En ég fullvissa þig um að það, þú þarft ekki að borgað nokkuð nema til mín.Ólafur kenndi mér þetta.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 21:11
er þetta Ólaf... sjálfur
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 21:14
Hemm, svona rúmlega mannbær, ætli þetta sé svona Fraudina slip með rúmlega?
Rut Sumarliðadóttir, 29.5.2009 kl. 21:17
Shit, er Finnur kafteinn kominn í vondan félagsskap?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 21:17
ekki Ólafur Ragnar Jón :)
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 21:18
Baldur: Ekki Ólafur Ragnar, hann fengi adrei pláss á víkingaskipinu því máttu trúa
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 21:19
neeei vissi það svosem Finnur sá er Ólaf u r
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 21:22
Þessi sigling er vissulega freistandi Finnur, sigla til Sviss út úr kreppunni. Ég gæti jafnvel orðið að liði, ég á frænda í Sviss sem er barnalæknir, það hentar vel með svo unga áhöfn ef við verðum ekki mjög lengi á leiðinni.
Ólafur Eiríksson, 29.5.2009 kl. 21:22
Finnur, ég vil að Rut skipsþerna þjóni mér til sængur. OK ?
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 21:22
við komum eitt sinn til Horsens i danmark, strákarnir höfðu keypt sér svona hiss "kellingu" (svona með lofti í) nú komum í höfn tollarar um borð og þeir fengu toll út á "dúkkuna" man ekki nafnið á "hissa dúkkuni" ekki það ég sakni hennar neitt, bara datt´etta svona í hug þar sem verið er að skoða munstrun á "meyjum" á skútuna
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 21:26
Það var hún underbara uppblåsbara Barbara sællar minningar....
Baldur Hermannsson, 29.5.2009 kl. 21:30
Samþykki allar kröfur Baldur kröfuhafa. Jakobína það gengur ekki að fær myndina mína niður um nokkur þrep, ég vil heyra mælt mál.
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 21:48
Ég fann að aðalvélin var ræst, þetta voru tæpir fjórir á Richter.
Ólafur Eiríksson, 29.5.2009 kl. 21:56
illa hituð olia Ólafur - ekki hræða mannskapinn
Jón Snæbjörnsson, 29.5.2009 kl. 22:00
Jón er skipstjórinn, en Ólafur, góð ábending
Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 22:37
Já ég er bara algjörlega sammála þessu
bara hreinsa allt í burtu og byrja með ný spil.
fyrri gjöf var illa gefin....
Arnar Bergur Guðjónsson, 30.5.2009 kl. 01:08
Nú er ekki Finnur kafteinn? Hvað ætlar hann að vinna um borð? Siglingafræðingur?
Baldur Hermannsson, 30.5.2009 kl. 01:13
Vil vera með.
Sólveig Þóra Jónsdóttir, 30.5.2009 kl. 02:59
Húrra, Sólveig mætt með pokann sinn, alltaf verður þetta betra og betra! (fjölmenni við kabyssuna)
Baldur Hermannsson, 30.5.2009 kl. 06:06
Treysti Jóni best, ég verð með svona innra eftirlit, úr lúkarnum. Sólveig fær sko að vera með.
Finnur Bárðarson, 30.5.2009 kl. 12:09
takk fyrir traustið Finnur, gott að hafa einn klárann í lúkarnum - þetta er þannig "skip" að pláss er fyrir alla sem hafa áhuga - spurning hvort við þurfum ekki að skvera bátinn fyrir komu til Sviss, hér vinna allir sem einn, ef við hjálpumst öll að við "baksið" þá náum við þessu réttum tíma
Jón Snæbjörnsson, 30.5.2009 kl. 14:29
Þú ert sjálfskipaður var farinn að halda að mér væri orðið ofaukið, en þá reddar þú mér með því að nefna nauðsyn á lúkarsmanni :)
Finnur Bárðarson, 30.5.2009 kl. 15:02
hehe góður
Jón Snæbjörnsson, 30.5.2009 kl. 16:29
Þetta er snildar útfærsla og getur bara ekki verið einfaldara í framkvæmd, get ég fengið pláss á skútunni sem kyndari?
Pétur Steinn Sigurðsson, 30.5.2009 kl. 17:47
Velkominn um borð Pétur, kampavínið er í lúkarnum ef þú vilt og já okkur vantar kyndara.
Finnur Bárðarson, 30.5.2009 kl. 17:49
Pétur stendur sig vel sem kyndari, allavega hætti jörð að skjálfa hér á suðurlandinu eftir að hann var munstraður í vélarrúmið.
Ólafur Eiríksson, 30.5.2009 kl. 23:44
Ólafur þú ert maður mér að skapi
Finnur Bárðarson, 30.5.2009 kl. 23:55
Finnur, hér er gott að vera og félagsskapurinn hreint fyrirtak! :)
Ólafur Eiríksson, 31.5.2009 kl. 00:58
Mér líst vel á þessar hugmyndir.
Sigurður Þórðarson, 31.5.2009 kl. 01:44
Veit einhver um takkann sem slekkur á kreppuni?
Offari, 31.5.2009 kl. 12:10
Falleg áhöfn "krakkar" - 7 dagar í Sjómannadag
Jón Snæbjörnsson, 31.5.2009 kl. 12:20
Er ég staddur í himnaríki? Stolt siglir fleyið mitt - og kafteinninn í brúnni syngur við raust! Það vildi ég að þetta hamingjuskip væri sjálf þjóðarskútan. En með leyfi að spyrja: hvar eru útrásarkapparnir geymdir? Eru þeir að mata kjölsvínið?
Baldur Hermannsson, 31.5.2009 kl. 12:39
Þessi fjandans hnappur Offari hef ekki fundið hann. Sigurður: Það er merkilegt að engir nema vesælir bloggarar skulu sjá þetta. Jón: Kraftmiklar ljóðlínur sem hleypa krafti í mann. Baldur: Við munum dauðhreinsa kjölinn af allri óværu, já og ef þetta væri ljóð um ástand þjóðarinnar í dag þá væri gaman að lifa.
Finnur Bárðarson, 31.5.2009 kl. 15:00
ég er nokkuð viss um að ef við stöndum saman sem vinir og félagar þá tekur (þolir) báturinn áföllin, við stöndum ölduna og pössum upp á hina sem eru ekki jafn öruggir og við hin, einhverjir kunna að fá þetta sem kallað er sjóveiki, aðrir sleppa við þann gest, komum bátnum í "örugga" höfn
Baldur, það er okkar að búa til núna
Jón Snæbjörnsson, 31.5.2009 kl. 22:14
Undir þinni stjórn Jón þá er allt í öruggum höndum
Finnur Bárðarson, 31.5.2009 kl. 22:40
Finnur, þetta gerum við öll saman er það ekki - verum öll þeir eða þau sem stýrum
Jón Snæbjörnsson, 1.6.2009 kl. 00:07
Sem sagt: stjórnleysi. Ég vil ekki hlusta á svona lýðræðiskjaftæði. Ég er orðinn leiður á lýðræði. Bindið Jón í brúna og látið helvítið stjórna.
Baldur Hermannsson, 1.6.2009 kl. 00:10
góður Baldur rólegur
Jón Snæbjörnsson, 1.6.2009 kl. 04:03
"..Kreppu sem enginn vill losa okkar undan, ekki einu sinni stjórnvöld..."
Bankarnir fóru eða hrundu , en við eigum sem sagt að borga fyrir þetta bankahrun (og/eða kreppu), og syðja þessa nýju banka í því setja okkur sjálf í annað eins allsherjar hrun, er eitthvað réttlæti í þessu?
Við eigum að styðja eitthvað sem á síðan að vera í því að setja okkur sjálf á hausinn.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 11:31
Þorsteinn færslan var skrifuð í háði. En auðvitað er þetta rétt sem þú segir.
Finnur Bárðarson, 1.6.2009 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.