Frelsi barna stórlega skert
27.3.2009
Nú er farið að bjóða þriggja ára einstaklingum upp á kraftmikil fjórhjól. Lögreglan ætlar að reyna að stöðva þetta. Enn og aftur ætla yfirvöld að hefta möguleika barna til að þroskast, taka frumkvæði og sýna ábyrgð í lífinu. Eða ætlast yfirvöld til þess að foreldrar fari að bjóða börnum sínum upp á lummuleg reiðhjól, eða það sem er enn verra, láta þau jafnvel ganga? Ég trúi því ekki að foreldrar láti þessa forræðishyggju yfir sig ganga. Enn sem fyrr er vegið að þeim sem minnst mega sín.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
mótorhjól og það fyrir hálffullorðin "börn" ekkert má nú orðið
Jón Snæbjörnsson, 27.3.2009 kl. 14:46
Ég segi það allt bannað
Finnur Bárðarson, 27.3.2009 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.