Ögmundur fer að vilja heimamanna
28.2.2009
Mér sýnist að Ögmundur sé búinn að afturkalla allar niðurskurðartillögur forvera síns, Guðlaugs Þórs, í heilbrigðiskerfinu. Ögmundur segist fara að vilja heimamanna og afturkallar allar hugmyndir um sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Eðlilega vilja heimamenn ekki niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, það vill enginn. Mér er ekki kunnugt um að Ögmundur hafi spjallað við heimamenn í Reykjavík og kynnt sér vilja þeirra þegar niðurskurður á LSH var ákveðinn. Þegar upp verður staðið verður það trúlega Landspítalinn sem mun bera allar sparnaðarbyrgðarnar, eins og alltaf áður.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:59 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.