Einhver spaugari í Bandaríkjunum dirfist að gera grín að stórasta landi í heima. Hvernig getur það verið að heimsmetaþjóðin fái slíka kveðju frá bandarískum ástvini. Þjóðin sem viðskiptaráð sagði á sínum tíma ætti enga samleið með öðrum þjóðum þar sem við stæðum þeim langtum framar á öllum sviðum. Á ekki að gera eitthvað í málunum t.d málsókn eða kynningarstarf og hvar er forsetinn.
Gerir óspart grín að Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvar er Viðskiptaráð og á það ekki að svara þessu? Við erum jú öllum fremri, tala nú ekki um Skandinavíulúðana sem standa okkur laaaaangt að baki.
Kolbrún (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 17:37
Ég veit ekki hvar það er niðurkomið núna Kolbrún, en þetta voru, eða eru jakkafatastrákar úr viðskiptalífinu á uppsprengdum launum sem leiðbeindu stjórnvöldum fram af hengifluginu
Finnur Bárðarson, 4.2.2009 kl. 17:46
Sennilega hefur það skriðið ofan í holurnar (kannski holurnar á Cayman-eyjum?).
Kolbrún (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 18:26
Góð tilgáta
Finnur Bárðarson, 4.2.2009 kl. 18:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.