Amy Winehouse og Sigurður Einarsson
14.5.2010
eiga eitt sameiginlegt. Að hafa fengið heimsfrægan lögfræðing, Ian Burton, sem hefur sérhæft sig í að verja hvítflibbaglæpamenn um allan heim. Veit ekki hvers vegna Amy er að þvælast í þessum ógeðfellda karlaklúbbi hvítflibbaglæpona.
Og það er líka hulin ráðgáta hvers vegna Sigurður sér ástæðu til að ráða lögfræðing, sem hefur sérhæft í stórglæpum þar sem Sigurður hefur margoft ítrekað að allt sé á misskilngi byggt hann hafi ekkert gert af sér.
Af hverju hóaði hann þá ekki bara í einhvern nýútskrifaðan úr lagadeild HÍ, sem gæti auðveldlega leiðrétt þennan leiða misskilning.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Facebook
Athugasemdir
Ætli fjörið á biðstofunni hafi ekki ráðið einhverju um.
Ragnhildur Kolka, 14.5.2010 kl. 18:32
Það er undarlegt að draga krakkhaus inn í fréttina til að auka á mikilfengleik lögfræðingsins.
En þar hæfir kjaftur skel.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.5.2010 kl. 18:49
Já, einkennilegt að Siggi Gunga skuli vera svona hræddur og gera svona stórt í buxurnar ef hann er alsaklaus sem hvítþveginn engill.
Heimur versnandi fer. Voru ekki víkingarnir í gamla daga meiri karlmenni en þessi heigull sem þorir ekki heim?
Er Siggi Gunga nýja, mjúka glæpatýpan?
Kama Sutra, 14.5.2010 kl. 19:25
Trúlega rétt hjá þér Ragnhildur :)
Finnur Bárðarson, 14.5.2010 kl. 19:31
Axel, Kanski eiga þau eithhvað sameiginelgt....eftir allt saman ?
Finnur Bárðarson, 14.5.2010 kl. 19:33
Kama, það var þó eitthvað guts í víkingum þó þeir væru frekar vondir.
Finnur Bárðarson, 14.5.2010 kl. 19:33
Ef farið verður að þessum kröfulista er ekki öll von úti um að Siggi Gunga fáist til að koma til landsins og spjalla við þann Sérstaka.
Kama Sutra, 14.5.2010 kl. 22:53
Siggi kemur bara í járnum Kama
Finnur Bárðarson, 14.5.2010 kl. 23:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.