Ofsóknir

Þessi pörupiltur þingsins sakar Þórunni um ofsóknir í sinn garð. Sér þessi piltur engan mun á réttu og röngu. Svo mikið er víst að hann kann enga almenna mannasiði.
mbl.is Höskuldur stendur við orð sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ekki seinna vænna að stofna eineltishóp um þetta.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 7.11.2009 kl. 17:49

2 Smámynd: Sigurjón

Kallazt það mannasiðir að kalla menn úti í bæ ,,pörupilta þingsins"?  Þér væri nær að koma með dæmi um það að hann fari með rangt mál.  Annars er það þú sem ert siðlaus...

Sigurjón, 7.11.2009 kl. 17:54

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hann verður að fara í karlathvarfið.

Finnur Bárðarson, 7.11.2009 kl. 17:54

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þegar við á að kalla einhvern pörupilt er það réttmætt þegar menn hafa unnnið til titilsins Sigurjón. Ég er annálað prúðmenni og algerlega siðlaus.

Finnur Bárðarson, 7.11.2009 kl. 18:06

5 Smámynd: Sigurjón

Þú kemur sumsé ekki með dæmi eða rök fyrir því að Höskuldur hafi unnið til titilsins?

Sigurjón, 7.11.2009 kl. 18:16

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þú verður bara að lesa fréttina Sigurjón minn. Annars skrifa ég bara það sem mér sýnist. Þetta er mín síða.

Finnur Bárðarson, 7.11.2009 kl. 18:21

7 identicon

Seint verður logið upp á þessa stuttbuxnadrengi Framsóknar!

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 18:55

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sigurjón; allur málflutningur Höskuldar og höfðingja hans undanfarið hefur verið byggður á formúlunni "látum þá neita því."

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.11.2009 kl. 19:30

9 identicon

Þetta er einfalt, hér er úrskurðurinn. Svo getið þið haldið áfram að uppnefna framsóknarfólk eins og ykkur sýnist, þið vaxið væntanlega af því.

„Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða mín að afgreiðsla umhverfisráðuneytisins á stjórnsýslukæru A vegna ákvarðana Skipulagsstofnunar frá 31. maí og 1. júní 2007 hafi ekki verið í samræmi við ákvæði 4. mgr. 14. gr. laga nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum. Einnig er það niðurstaða mín að ráðuneytið hafi ekki gætt nægilega að því að meta meðal annars í ljósi málshraðareglunnar hvort það væri raunveruleg þörf á því að afla umsagna frá öllum þeim umsagnaraðilum sem það leitaði til, þ. á m. frá Umhverfisstofnun og iðnaðarráðuneytinu, í því skyni að upplýsa málið. Það er enn fremur niðurstaða mín að umhverfisráðuneytinu hafi borið að tryggja að það drægist ekki úr hófi fram að ítreka umsagnarbeiðnir sínar til umsagnaraðila þegar það lá fyrir að umsagnir þeirra höfðu ekki borist á umbeðnum tíma. Þá er það niðurstaða mín að umhverfisráðuneytið hafi ekki haft frumkvæði að því að skýra A frá fyrirsjáanlegum töfum á afgreiðslu málsins þegar það lá fyrir að úrskurðir ráðuneytisins myndu ekki liggja fyrir innan hins lögmælta frests samkvæmt 4. mgr. 14. gr. laga nr. 106/2000. Fær framangreind málsmeðferð ekki samrýmst þeim kröfum er leiða af 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.“

Geir Hólmarsson (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 19:50

10 Smámynd: Kama Sutra

Ég sé að Höskuldur er ennþá upptekinn við að taka hlutina föstum vettlingatökum...

Kama Sutra, 7.11.2009 kl. 20:18

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Kannast hlustendur þáttarins við orðatiltækið: " að uppnefna Fsamsóknarfólk" ?

Finnur Bárðarson, 7.11.2009 kl. 20:32

12 Smámynd: Sigurjón

Það er gott hjá þér að skrifa sem mest Finnur.  Hins vegar er það svo þegar menn uppnefna aðra og jafnvel heilu flokkana án þess að nefna dæmi eða rök, máli sínu til stuðnings, þá verða þau skrif einungis minnisvarði um hve höfundurinn er ómerkilegur persónuleiki að gera slíkt...

Sigurjón, 7.11.2009 kl. 21:54

13 identicon

Þórhallur hefur greinilega bara rétt fyrir sér. Svo það er ljóst að Þórunn er ekki bara leiðinleg heldur.....

Soffía (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 23:57

14 Smámynd: Finnur Bárðarson

Í mínum huga eru ekki til FLOKKAR, Sigurjón annað hvort ertu einstaklingur sem hugsar eða einhver í sauðahjörð sem þarf að láta hugsa fyrir sig.

Finnur Bárðarson, 8.11.2009 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband