Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Já, já

Segðu mér annan.
mbl.is Björgólfur gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann borgar það sem honum ber

á að veita honum Fálkaorðuna fyrir afrekið ?
mbl.is Þorsteinn Már greiðir mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú borga erlendir fyrir sukkið hér á landi

images.jpgÞegar ekki er hægt að sukka lengur í útlöndum hafa s.k. skilanefndir tekið upp þráðinn nú innanlands. Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis bauð útvöldum í veislu í apríl sem kostaði 720 þúsund krónur þar af 380 þúsund í vín. Þetta er ekkert að vefjast fyrir Árna og segir hann glaður í bragði, það eru erlendir kröfuhafar sem borga. Siðferðið er á þennan veg hjá þessari svo kölluðu skilanefnd. (dv.is)

Grafalvarlegt mál

Það er ekki umfjöllunin um manninn sem er alvarleg, heldur gjörðir hans og ógnarverk gagnvart þjóðinni sem hann skildi eftir í eilífu skuldafeni. Það er þetta grafalvarlega mál sem, þjóðin krefst að verði rannsakað ofan í kjölinn af dómstólum.
mbl.is Björgólfur Thor: Skipulagður óhróður, véfréttir og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt eðlilegt

Að mati hans er ekkert óeðlilegt við að koma 243 milljónum úr landi skömmu fyrir hrunið. Nei að sjálfsögðu finnst honum þetta eðlilegt því þannig er hugsunarháttur þeirra sem haldnir eru sjúklegri siðblindu. Þó hann trúi bullinu sjálfur trúir þjóðin ekki einu einasta orði sem kemur frá þessum fjárglæframanni.
mbl.is Bjarni Ármannsson: Eðlileg fjárstýring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver heldur hlífiskildi yfir bankaræningja

Björgólfur Thor Guðmundsson hefur aldrei verið kallaður til yfirheyrslu vegna stærsta bankaráns Íslandssögunnar og trúlega alls heimsins. Hvað öfl og einstaklingar eru að vernda þennan viðurstyggilega einstakling og hvers vegna ?

Fyrir alla muni

Ég vil bara hvetja ungt fólk til að nota tækifærið og fara burt til kynnast nýjum alvöru heimi, alvöru heiðarlegu fólki sem ekki er að rembast við að vera heimsmeistarar í einu eða neinu og yfirgefa þennan sýndarveruleika sem ríkt hefur á Íslandi undanfarin ár.
mbl.is Hundruð flytjast til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn skortur á húsnæði

Það mætti nota hálfklárað tónlistarhús, án hita og rafmagns og nota glæpamennina sem sýningargripi öllum til viðvörunar. En í einhvers konar dýflissu munu þeir fara áður en yfir lýkur, hvar sem það verður. Fyrr öðlast þjóðin ekki sálarfrið.
mbl.is Þjónustuíbúðir verði auðmannafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki má lækka hæstu launin

hjá ríkinu að mati Tryggva Þórs Herbertssonar því þá verður bara "hratið eftir". Ágætu ríkisstarfsmenn á lágum launum, leggið orð stjórnmálaskörungsins á minnið. Þið eruð ekki einu sinni hrat, ekki botnfall, þið eruð ekkert í hans augum. (samtal við RÚV)

Að sjálfsögðu

Bankinn er ekki nein Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Skil vel að hann fari ekki að lána þessum rumpulýð eitt eða neitt.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband