Eignarnám strax

Hrifsið jarðirnar úr höndum þessarra fjárglæframanna strax. Þessum mönnum skal ekki einnig líðast að saurga íslenska náttúru með nærveru sinni.
mbl.is Skulda milljarð út á jarðakaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Láttu nú ekki svona Finnur minn. Þessir menn hafa þurft að þola svo mikið undanfarið; tryggingar af lúxusbílum, skipulagsgjöld af jarðeignum, hryllilegan fasteignaskatt, skatta, útsvar, flygildi ýmis konar og fjármagnstekjuskatt.

Elsku litlu hnoðrarnir þurftu að taka ógurleg lán fyrir þessu öllu og neyddust sumir til að stofna félög í kringum lánin og setja sín auðmjúku heimili á nöfn ættingja, svo þeir þyrftu ekki að svelta, ef þeir hrykkju nú upp af vegna ábyrgðar.

Elsku litlu kútarnir.

Eygló, 7.11.2009 kl. 21:32

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jafnvel ég hefði getað keypt Langá og Mýrar á góðum degi fyrir hundrað þús kr. (Hver á það ekki í vasanum á góðum degi ?) Svo fremi að hálfur milljarður eða meir hefði bara fengið að bíða betri tíma.

Hver á þessar jarðir núna ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 7.11.2009 kl. 21:34

3 Smámynd: Offari

Jarðir margfölduðust í verði vegna svona gjörninga. Þeir sem vildu kaupa sér jarðir til að búa á gátu aldrei keppt við svona viðskipti.  Ég lái þeim ekki sem seldu því hver hefði ekki tekið svona ofurtilboðum?

Reyndar heyrði ég af einum bónda í Skorradal sem neitaði að selja þrátt fyrir að honum væri boðið miljarð í jörðina.

Offari, 7.11.2009 kl. 21:35

4 identicon

Það þarf að framkvæma eignarnám hjá öllum þessum fjárglæframönnum, sem settu þjóðina á hausinn. Taka af þeim jarðirnar, Actavis af Björgólfi Thor og Lyf og heilsu af Karli Wernerssyni.

Steini (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 21:44

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Tek undir með þér Eygló. Maður er orðinn of harðbrjósta. Hildur þær hefðu verið betur komnar í þinni vörslu, Offari Þessi bóndi sem ekki vildi selja er minn maður

Steini: Þú talar úr mínu hjarta

Finnur Bárðarson, 7.11.2009 kl. 21:51

6 Smámynd: Björn Birgisson

Hvenær skyldu réttarhöldin hefjast yfir þessum mönnum? Held að þjóðin bíði spennt eftir þeim. Þjófum ber að refsa.

Björn Birgisson, 7.11.2009 kl. 22:23

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

svo hjartanlega sammála þér Finnur - hirða jarðirnar af þessu "liði" og það án sérstaks málareksturs - svindlið og svínaríið er borðleggjandi og á ekki að fá að viðgangast deginum lengur

Jón Snæbjörnsson, 7.11.2009 kl. 22:27

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ég er í þeirri stöðu að þurfa að búa við og horfa upp á margar jarðir sem eru í eigu glæpamannanna oftar en ekki standa þær auðar ef ekki þá mjög illa nýttar með endalausum annmörkum t.d. má ekki veiða, taka möl, beita, fara framhjá svo eitthvað sé nefnt alveg ólíðandi með öllu. Frekjan og yfirgangurinn alveg ótrúlegur og svo þegar upp er staðið þá eigum við þær flestar vegna þess að þeir stálu þeim í gegnum bankana.

Sigurður Haraldsson, 8.11.2009 kl. 00:17

9 Smámynd: Kjarri thaiiceland

Alveg innilega sammála að taka eignirnar af þessu fólki.

Þó held ég að það verði aldrei gert!! Réttindi þessara manna eru svo miklu meiri heldur en allra sem nú sitja í súpunni eftir þessa menn (allir aðrir landsmenn). Aumingja mennirnir sem "neyddust" (eins og Eygló segir) til að stofna  félög utan um skuldirnar sínar hefðu ÖRUGGLEGA hirt hverja eina og einustu krónu sem þeir hefðu fengið í hagnað af þessari eign (jafnvel reynt að koma aurunum undan skatti á einhvern hátt). Síðan ef hlutirnir ganga ekki upp að þá er venjan að eignirnar eru samt einhvernvegin selt út úr félaginu og eftir stendur eignalaust félag með milljarðaskuldir (sem við borgum svo alltaf á endanum). Ég ætla ekkert að fullyrða að þeir séu búnir að koma eignunum undan (getur verið meira áberandi núna þegar allir fylgjast með) en væri samt ekkert hissa á því. Persónulega finnst mér rétt að eins og ástandið er að þá þyrfti (og ætti) að vera MIKLU rýmri ákvæði að taka eignir af mönnum (og ekki bara þennan landskika heldur allar eignir upp í þær skuldir sem þeir geta ekki borgað).  Bara svona mín skoðun. Ekki er farið neinum vettlingatökum að almenningi (ekki séð það enn).

Kveðja Kjarri thaiiceland. www.thaiiceland.com

Kjarri thaiiceland, 8.11.2009 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband