Össur í útrásinni

Meðan blóðugur niðurskurður er á fullu t.d í heilbrigðiskerfinu, sér Össur enga ástæðu til að rifa seglin í sínu ráðuneyti. Hann heldur áfram að stækka hirðina í kringum sig og fjölga tilgangslausum vínsmökkurum um víða veröld.
mbl.is Nýr sendiherra í Lettlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

"Herrarnir" sjálfir eru verstir - og þetta láta aðrir stjórnmálamenn viðgangast þar sem þeir eru litlu skárri og það gæti komið að þeim svo vissara að segja sem minnst  

Jón Snæbjörnsson, 10.3.2010 kl. 15:53

2 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Algerlega veruleika firrt lið. Hækkar álögur og fer síðan að leika sér fyrir aurana.

Sindri Karl Sigurðsson, 10.3.2010 kl. 16:02

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég er farinn að halda að þeir ráði þessu sjálfir, hvort skorið er niður eða ekki. En eins og alltaf verða dekuráðuneytin alltaf stikk frí. Spítalarnir fyrst, enda bara veikt fólk þar sem ekkert gagn er af.

Finnur Bárðarson, 10.3.2010 kl. 16:26

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

undrast hversu áhuginn er lítill á þessu "bruðli" ótrúlegt bara

Jón Snæbjörnsson, 10.3.2010 kl. 22:27

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Stærsti gallinn við niðurskurðaráætlanir er að allri skynja nauðsyn þess að skera niður allstaðar nema á eigin skinni.

Ég hefði talið að öflugur niðurskurður í utanríkisþjónustunni þyrfti ekki að vera mjög sársaukafullur. Í það minnsta mætti slá af þessa bölvuðu stríðsleiki  annara þjóða hér á Íslandi, sem við kostum að hluta.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.3.2010 kl. 23:28

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

„til skamms tíma hösluðu íslensk fyrirtæki sér völl í Lettlandi“

hvaða völl voru íslensk fyrirtæki að hösla?

Brjánn Guðjónsson, 11.3.2010 kl. 00:31

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þetta er ekki einusinni niðurskurður heldur "útrás" frá "heimili" þar sem mat skortir fyrir marga - ekki öll vitleysan eins en þetta keyrir um þverbak

Jón Snæbjörnsson, 11.3.2010 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband