Sáttur við 32 milljarða króna tap

thorgeir.jpgOfurlaunaforstjórinn á Cadilac jeppanum, Þorgeir Eyjólfsson, er hættur störfum. Segist vera harla ánægður með störf sín. Í starfi sínu sem forstjóri Lífeyrissjóðs Verlsunarmanna í fyrra, tókst honum að skila sjóðnum með 32 milljarða króna tapi. Ef þetta hefði nú verið prívat hannyrðaverslun gaursins, þá væri ekki mikið hægt að segja. En hann var að gambla með sparifé almennings.
mbl.is Forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna segir upp störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Ég fæ mig varla til að hugsa um svona -lið, hvað þá skrifa.

Hlédís, 15.5.2009 kl. 15:57

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þó ég hafi ekki orðið persónulega fyrir barðinu á svona gaur, þá er brýnt að halda þessari umræðu við.

Finnur Bárðarson, 15.5.2009 kl. 16:01

3 identicon

Sæll Finnur.

Ég hjó eftir þessu sama og þú, að öðru leyti sammála Hlédísi.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 16:11

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þórarinn, ég held áfram að skrifa um þetta, hef það á tilfinningunni að þessi útrásarmál verði látin gufa upp og firnast í skjóli stjórnvalda.

Finnur Bárðarson, 15.5.2009 kl. 16:15

5 identicon

Maðurinn segir: "Ég hverf frá sjóðnum sáttur þegar horft er til vaxtar hans og árangurs þennan aldarfjórðung sem ég hef stjórnað daglegum rekstri. En ég mun sakna frábærra starfsmanna og árangursríks samstarfs við stjórn sjóðsins" Er hann að leggja sig fram við að ofbjóða fólki?

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 17:42

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Annað hvort er manninum ekki sjálfrátt eða það sem þú segir Viðar. Hallast að þinni túlkun.

Finnur Bárðarson, 15.5.2009 kl. 17:47

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þakka upplýsingarnar Finnur!  Það er semsagt 32 milljarða skuld, ekki nema vona að kallin sé sáttur við að fara, áður en hann þarf að svara fyrir afglöpin.

En hvernig hljóðar starfslokasamningur hans veistu það?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.5.2009 kl. 18:13

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Lilja: Starfslokin verða gerð upp í koníaksstofunni á Hótel Holti fjarri sjóðsfélögum.

Finnur Bárðarson, 15.5.2009 kl. 18:20

9 identicon

Lilja við þurfum að komast yfir starfslokasamning hans. Erfitt er að fá svoleiðis toppleydó uppgefin. Reynum að framkalla leka með því að þrýsta á málið.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 18:34

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þþþþessi er bara flottur api

Jón Snæbjörnsson, 15.5.2009 kl. 19:36

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þeir sjá allt úr fjarlægð og í vímu Óskar en þeir trúa á tröppur úr steini.

Finnur Bárðarson, 15.5.2009 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband