Tvö hús

Á DV er greint frá því að annað af tveimur húsum Hannesar Smárasonar við Fjölnisveg hafi verið atað rauðri málningu. Vörður er nú við húsið. Það var ekki rauða málningin sem vakti athygli mína heldur þetta græðgislega fyrirbæri að eiga tvö risavaxin hús við dýrustu götu borgarinnar. Svo má spyrja sig hvort Hannes eigi húsin en ekki þjóðin ? En ljóst má vera að það fer þrengja að fjárglæframönnum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: patty og selma

hey sniðugt. ætli hann eigi ketti í þessum húsum? vonandi ekki. köttum er illa við málningu.

patty og selma, 3.4.2009 kl. 17:29

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég myndi aldrei ætla ketti svo slæmt hlutskipti að vera í návist Hannesar :)

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 17:31

3 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Að því er ég best veit á konan hans húsin.

Annars hefði mér fundist flott ef hann hefði gert húsið á 9 upp í þeim stíl sem það var byggt. Það er að vísu friðað að utan með upprunalega hurð og glugga með gamlalaginu, en á húsinu var skífuþak. Húsið er flott að utan. Garðurinn fínn og vel hugsað um það, en að innan  var öllu snúið við. Þarna bjó ég fyrstu 20 árævinnar og hef meiri taugar til þess en ég hélt.

Hólmfríður Pétursdóttir, 3.4.2009 kl. 17:46

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Í alvöru? Rosalega fallegt hús það er bara synd að það sé óhreinkað með manni eins og Hannesi. Húsið á betri örlög skilið. En það er einhver lenska að blása öllu þessu fallega út.

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 17:50

5 Smámynd: patty og selma

nei kettir eiga betra skilið.

patty og selma, 3.4.2009 kl. 18:46

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

patty og selma þið eruð þá sannir kattavinir, velkomnar í heimsókn alltaf :)

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 19:01

7 Smámynd: Baldur Hermannsson

Frekar ógeðslegt, ekki satt? Það er aðeins ár liðið síðan Hannes var elskaður og dáður. Þeir sem útsvína hann í orði núna dáðu hann þá og sleiktu hann upp sem mest þeir máttu. Þá mátti ekki halla orði á þetta óskabarn þjóðarinnar, nú lofsyngja menn pöpulinn sem slettir málningu á húsið hans. Lélegt.

Baldur Hermannsson, 3.4.2009 kl. 19:42

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Skil punktinn hjá þér Baldur. En ég vil heyra hringl í handjárnum og járnglófum.

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 19:57

9 Smámynd: Baldur Hermannsson

Finnur, þetta er ágætt áhugamál sem þú skalt stunda af elju í hjónaherberginu - en láttu útrásarvíkinginn í friði.

Baldur Hermannsson, 3.4.2009 kl. 20:56

10 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Það er líklegast rétt að þjóðin á þessi hús.  Nú er lag að rukka gaurinn um húsaleigu.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 3.4.2009 kl. 20:57

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Aldrei í lífinu Baldur skal ég láta víkingana í friði, aldrei !!

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 21:04

12 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sigrún: Ég auglýsi eftir hústöku fólki a La Danmark

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 21:05

13 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Og kemur ekki að tómum kofanum,  ég veit um tvo aðila af yngri kynslóðinni sem eru að leita sér að húsnæði  Þú verður að koma með fleiri.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 3.4.2009 kl. 21:10

14 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta er risahús, er með áhugasama í deiglunni

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 21:21

15 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Ég á ekki við nokkurn mann hér en nokkuð til í þessu hjá Baldri;

quote

Það er aðeins ár liðið síðan Hannes var elskaður og dáður. Þeir sem útsvína hann í orði núna dáðu hann þá og sleiktu hann upp sem mest þeir máttu. Þá mátti ekki halla orði á þetta óskabarn þjóðarinnar, nú lofsyngja menn pöpulinn sem slettir málningu á húsið hans. Lélegt.

unquote

sorglegt hvað margir gjörsamlega misstu sig og poppa nú upp sem aðal- mennirnir og nú með allt sitt á kristaltæru

Jón Snæbjörnsson, 3.4.2009 kl. 23:29

16 Smámynd: Finnur Bárðarson

gott Jón

Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 23:33

17 Smámynd: Hlédís

B.Her  lofsöng ef til vill og halelújaði fyrir einu ári, Jón - en langt er frá að "allir" hafi gert það. Persónulega finnst mér hreinlegra að fara í löglegar aðgerðir gegn fjárglæfra-mönnum og málningarslettur í laumi ekki sérleg hetjudáð. 

Öryggisvarslan sem fyrrum dýrlingarnir kaupa sér, segir sína sögu um hvernig þeir líta sjálfir á eigin sök og hugsanlegar afleiðingar gjörða sinna.

Hlédís, 4.4.2009 kl. 18:16

18 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hvað ertu þú að ljúga upp á mig, kerling? Ég legg það ekki í vana minn að lofsyngja auðjarla þótt sumir geri það sýknt og heilagt. Mér fannst hólið og smjaðrið ganga alltof langt þá og mér hugnast ekki að sjá skrílinn taka að sér dómsvaldið núna.

Baldur Hermannsson, 4.4.2009 kl. 18:26

19 Smámynd: Hlédís

Þú ert að bulla, karl-grey! Ég fullyrti ekkert um þig - hvað þá laug. - Hef ekki nógan áhuga á fyrirbrigðinu. 

Annars er ég sammála því að málningarslettur og gífuryrði séu óþörf nú.

Hlédís, 4.4.2009 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband