Þekkja hlustendur þáttarins við orðatiltækið "að kannast ekki við" ?

Nei ekki Halldór. Þessi gaur lýgur og lýgur eins og hann hefur áratuga þjáfun í. Ekki opna þverrifuna Halldór. Þú ert efstur á lista yfir holdgervinga spillingarinnar ásamt vini þínum Finni Ingólfssyni.
mbl.is Kannast ekki við handstýringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Það voru nú ekki beint gleðilegir endurfundir að fá Halldór aftur á skjáinn. Hann hefur ekkert breyst, enda héldu það víst fæstir.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 7.5.2010 kl. 20:36

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hann sagði í lok viðtalsins að sem kristin maður og aðdáandi kristinna gilda biðjast afsökunar í kirkju!

Skítt með þjóðina....nema auðvitað hann biðjist afsökunar í þjóðkirkjunni, sem hlýtur að vera það sama og þjóðin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.5.2010 kl. 20:57

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nei Hildur þegar ég sé hann þá veðru mér óglatt

Finnur Bárðarson, 7.5.2010 kl. 21:31

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jæja Axel ætlar hann rölta niður í kirkju og biðja um aflausn, honum líkt.

Finnur Bárðarson, 7.5.2010 kl. 21:32

5 Smámynd: Brattur

... Ég hélt fyrst að þetta væri Pálmi Gestsson þegar Dóri birtist á skjánum... En eigum við ekki bara að vitna beint í Halldór sjálfan þegar hann var gagrýndur fyrir stuðning Íslands við Íraksstríðið;

"Við eigum ekki alltaf að dvelja í fortíðinni, við eigum að líta til framtíðar"

Sjáið þið hann ekki fyrir ykkur fara með þessa snotru ræðu ?

Brattur, 7.5.2010 kl. 22:41

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Af einhverjum ástæðum er mér minnisstæðast þegar hann fann sinnepsgasið í Írak.

Sæmundur Bjarnason, 7.5.2010 kl. 23:01

7 Smámynd: Brattur

Var þetta SS sinnepsgas Sæmundur ?

Brattur, 7.5.2010 kl. 23:09

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég man nú bara eftir fréttum um þetta og þar var talað við Dóra um þennan merka fund. Hann var alveg í skýjunum og átti von á klappi á bakið frá búskmanninum.

Sæmundur Bjarnason, 7.5.2010 kl. 23:25

9 Smámynd: Finnur Bárðarson

Gaurinn er með sinnepsfíkn, engin þekkt meðferð er til við því

Finnur Bárðarson, 8.5.2010 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband