Hvítvoðungaþjóðin

baby.jpg

Bara spurning ein, er lýsandi fyrir þroskastig þjóðarinnar. Hverjum treystir þú best til að leiða þjóðina úr kreppunni ? Ég skil vel að einhver þarf að leiða ungabarn yfir umferðargötu. En fullorðnir eru greinilega á þroskastigi hvítvoðungsins og þarf alltaf að láta leiða sig, fram á gamals aldur. Trú á eigið frumkvæði er ekkert eins og hjá óvitanum sem treystir því, að einhver annar muni leysa öll vandamál og gera allt fyrir hann. Hvers vegna valdi enginn Guð ?


mbl.is Treysta Davíð til að leiða landið út úr kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

því er sí og æ verið að  hræra í sama pottinum - sóun á tíma og peningum sem og rótar enn frekar í fólki

Jón Snæbjörnsson, 29.10.2009 kl. 14:05

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Gerð var úttekt í gullfiskabúrinu og fegurstu gullfiskarnir spurðir, ljótu leiðinlegu fiskarnir voru látnir afskiptalausir.

.... og ég syndi á braut og slæ litla ljóta svarta sporðinum í áttina að gullfiskunum.  Megi þeir og afkomendur þeirra lifa hamingjusamir "ever after".

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.10.2009 kl. 14:17

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jafnvel Frank Sinatra hefði beðið lengur með næsta comeback. 

Hins vegar væri nú gaman ef Davíð færi í framboð, af ástæðum sem of langt yrði upp að telja.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 29.10.2009 kl. 14:56

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jón: Halda áfram en ekki leita að Guðlegum einstaklingi. Taka málin í eigin hendur.

Jenný: He. he, góður.

Hildur: Mig grunar að hann þekki ekki sinn vitjunartíma og fari fram.

Finnur Bárðarson, 29.10.2009 kl. 15:13

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

af hverju eru þeir ekki spurðir sem þurfa að borga ruglið aftur og aftur, á svosem ekki nein nöfn á takteinunum en það má alveg eins ver Gunnar Hannsson fiskverkamaður á Langanesi eins og hver annar

Í alvöru hvað vita þeir meira "hvítflybbarnir" ?

Jón Snæbjörnsson, 29.10.2009 kl. 16:47

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nákvæmlega Jón.

Finnur Bárðarson, 29.10.2009 kl. 16:48

7 Smámynd: Offari

Ég er ósáttur við það hve lítið fylgi Framsóknarmaðurinn fékk.

Offari, 29.10.2009 kl. 22:05

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

úúúfff Offari

Jón Snæbjörnsson, 30.10.2009 kl. 08:52

9 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég deili sorgum bloggvina hvar í flokki sem þeir standa

Finnur Bárðarson, 30.10.2009 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband