Veruleikafirring er ólæknandi

Það er svo sem allt gott og blessað við það að trúa á álfa og hulduverur. Að telja sér trú um að Ísland verður brautryðjandi í atvinnulífi heimsins eftir tíu ár er í besta falli tálsýn eða fáránleg óskhyggja, sem á sér enga stoð í veruleikanum. Mun líklegra er að við verðum í hópi fátækari landa a.m.k. í Evrópu. Brölt í einhverri stjórnskipaðri nefnd breytir ekki dagdraumum í veruleika.
mbl.is Ísland verði eitt af samkeppnishæfustu ríkjum heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

segðu, svona nokkuð fer stigversnandi - gildismat þjóðarinn - skilgreining gildismatsin - framtíðastyrkleiki - framtíðastyrkleikisþjóðarmat. úúfff

halda þjóðfund 14. nóvember -

við mætum er það ekki

Jón Snæbjörnsson, 25.9.2009 kl. 14:33

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég mæti Jón. Og ekki vantar orðasalatið, þungt andvarp.

Finnur Bárðarson, 25.9.2009 kl. 14:40

3 Smámynd: Offari

Mér er boðin sambærileg vinna í Qatar fyrir fimmföld laun. (Skattfrjáls að auki því þetta teljast láglaunastörf þar) Þannig að Ísland er vel samkeppnishæft hvað rekstur stóriðju varðar. Ég hef enga trú á að díselrastöðvarnar í Qatar séu það mikið ódýrari raforka að það útskýri launamuninnn í álverum.

Offari, 25.9.2009 kl. 14:51

4 identicon

Sæll Finnur.

Mér svelgdist á.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 14:52

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Offari: Nú ertu kominn inn á svið þar sem mig skortir þekkingu. En ertu nokkuð að skrökva þessu með vinnutilboðið :)

Finnur Bárðarson, 25.9.2009 kl. 14:59

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þórarinn: Takk fyrir innlitið. Ég er sjálfur að jafna mig eftir lesturinn. Þá er hún Pollýanna betri.

Finnur Bárðarson, 25.9.2009 kl. 15:00

7 Smámynd: Offari

Sæll Finnur. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef um þetta starf þá eru launin 1500000. á mánuði. Þú vinnur í þrjá mánuði og færð frí í þrjá mánuði. Frítt flugfar fram og til baka hvert sem þú ætlar í fríunum. Frítt húsnæði skólar heilsugæsla sími og internet.  Ég veit ekki hvort mogginn fylgji líka frítt með.

Mig langar til að slá til. En hitinn þarna er 40° svo ég veit ekkh vort ég geti unnið þarna því mér finnst of heitt í mínu álveri þega hitin utandyra fer yfir 10°.

Offari, 25.9.2009 kl. 16:03

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvers vegna ekki að kíla á þetta? Þetta er nú betra en að skríða endalaust í brunarústum. Flott þetta með fríið. Mér er sagt að fólk upplifi ekki þennan hita í samræmi við háar tölur.

Finnur Bárðarson, 25.9.2009 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband