Hrunarannsókn lokið

Málarameistarinn Skap Ofsi hefur verið handsamaður sem og sjö góðborgarar í úlpum, sem ætluðu að kynna sér störf alþingis. Hrunið telst því að mestu upplýst.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

...og léttirinn í samræmi við það !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 22.1.2010 kl. 17:17

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þessu er lokið sem betur fer Hildur, nú rís sólin á ný :)

Finnur Bárðarson, 22.1.2010 kl. 17:25

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Já það virka allir í þjóðfélaginu einhvervegin..miklu rólegri og sáttari eftir þessar aðgerðir..hmm

hilmar jónsson, 22.1.2010 kl. 17:31

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég heyri nánast englasöng óma í kyrrðinni Hilmar. Það hlaut að koma að því að stálglófarnir yrðu settir upp.

Finnur Bárðarson, 22.1.2010 kl. 17:42

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hmm nú - allt bú

Jón Snæbjörnsson, 22.1.2010 kl. 18:14

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta var þá ekkert eftir allt saman Jón, maður er svekktur. Smá fjör hefði ekki skaðað.

Finnur Bárðarson, 22.1.2010 kl. 18:44

7 Smámynd: Kama Sutra

Allt upplýst.  Úlpufólkið setti þjóðina á hausinn með flatskjáakaupum.  Djöfulsins spillingarlið.

Var ekki hvítþvegni útrásarengillinn hann Björgálfur búinn að segja okkur þetta?  Og við trúðum honum ekki.

Kama Sutra, 22.1.2010 kl. 21:07

8 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sannarlega óbærilegur léttleiki sem fylgir þessum málalokum.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 23.1.2010 kl. 03:23

9 Smámynd: Finnur Bárðarson

Kama Sutra: Við hefðum betur trúað manninum. Bölvuð sjálfsblekking alltaf.

Jenný: Já það er léttir að finna að þessari martröð er lokið, loksins.

Finnur Bárðarson, 23.1.2010 kl. 15:08

10 Smámynd: Offari

Kom ég hvítþveginn út úr rannsóknini?  Er mér þá óhætt að sækja aftur flatskjáinn sem ég faldi árið 2008?

Offari, 23.1.2010 kl. 16:19

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

og ekki nóg með það Offari við getum aftur farið að huga að fjárfestingum í Dubai.

Finnur Bárðarson, 23.1.2010 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband