Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Hvar værum við stödd án víkinganna ?

Meindýraeyðir með stjörnuljós úti í garði varð til þess að á annan tug þungvopnaðra sérsveitarmanna voru ræstir út. Það verður forvitnilegt að fylgjast með þegar stráklingar fara að sprengja kínverjana. Þá dugar ekkert minna en að senda skriðdreka á vettvang.
mbl.is Byssumaður reyndist meindýraeyðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drápsæðið heldur áfram

Í fjárlögum fyrir næsta ár fá refadrápsmenn 18 milljónir til að halda áfram ógeðslegri iðju sinni. Tala um forgangsverkefni.

Málningarslettur að handan ?

Lögreglan hefur ekki græna glóru hverjir standa á bak við málningarslettur á glæsihallir fjárglæframanna. Eftirlit og myndvélar leiða ekkert í ljós. Ég er farinn að hallast að því, að þeir sjálfir standi á bak við þetta, í veikri von um samúð alþýðunnar. Nema einhverjir að handan, okkur dauðlegum ekki sýnilegir, séu þarna á ferð að veita þeim verðskuldaða áminningu.

Skilur eftir sig rjúkandi rústir

hvar sem Hannes Smárason hefur farið um, hefur hann skilið eftir sig brunarústir einar. Sjálfur fitnar eins og púkinn á fjósbitanum. Vona að sérstakur saksóknari fari að taka þennan mann fyrir af alvöru. Það bókstaflega verður að koma slíkum brennuvörgum úr umferð áður en enn meira tjón hlýst af.
mbl.is 350 milljarða tap Stoða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpaþjóðin

Hvar sem borið er niður birtast fréttir af þessu tagi. Það er ekki ofmælt að kalla Ísland glæpaþjóð miðað við umfangið af glæpum miðað við höfðatölu. Svo eru menn að væla hér á landi um skort á vinum. Við eigum enga samleið með siðuðum þjóðum. Bjóðum Dr. Mugabe í opinbera heimsókn og finnum okkur samherja við hæfi.
mbl.is Grunur um milljarða sýndarviðskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert athvarf fyrir auðmenn ???

Í fréttum RUV var sagt frá því að framkvæmdum við sérstaka svítu ætluð auðmönnum hefði verið frestað um sinn. Björgólfur Guðmundsson vildi hafa hönnun í "heldri manna stíl" enda ekki annað við hæfi manna sem vilja skrá nafn í sögubækurnar fyrir að setja þjóð sína í gjalþrot. Það eru hins vegar til lúxussvítur á Litla Hrauni sem hæfa betur mönnum eins og honum og syni hans.
mbl.is Harpa skal tónlistarhúsið heita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríska siðgæðið

Hvern fjandan varðar fólk um það þótt gaurinn hefði 200 hjákonur. Annað eins hefur nú gerst.
mbl.is Netverjar hella sér yfir Tiger
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi hér ?

Fékk hrappurinn 3,9 milljarða króna í eigin vasa eftir allt saman eða er ég að misskilja eitthvað ?
mbl.is Kröfu Bjarna ofaukið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innrásin að hefjast

Þrátt fyrir engilbjarta ásjónuna leynist biksvört sál græðgi og siðleysis. Þessi maður sem átti drjúgan þátt í að setja þjóðina á vonarvöl tekur við þar sem frá var horfið. Úr brunarústunum ætlar hann að næla sér í síðustu aurana til eigin brúks. Fleiri af hans sauðahúsi munu fylgja í kjölfarið. Það er kominn tími til að sérstakur saksóknari, með handjárnin á lofti, vaði í þennan mann .
mbl.is Heildarkröfur Bjarna 4 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstiréttur mun frelsa þá

Trúlegt er að Daníel Þórðarson og Stefnir Agnarsson muni áfrýja dómnum til hæstaréttar.  Þar eiga þeir hauka i horni. Ég er ekki í nokkrum vafa um, að Hæstiréttur muni ógilda dóminn umsvifalaust. Hæstiréttur verndar sína, ef ekki er um að ræða ketþjófa.
mbl.is Dæmdir fyrir markaðsmisnotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband