Gerið hann berstrípaðan

Vona að bankinn láti ekki staðar numið hér. Takið allt af þessum myrkarhöfðingja, þyrlur, flugvélar, hús, sumarhús, kvóta og seljið hæstbjóaðanda. Skiljið hana eftir á nærbrókunum einum saman. Þá getum við loks farið að tala um einhverja sanngirni.
mbl.is Toyota á Íslandi sett í sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, Finnur.

Þetta er geðveikisleg GRÆÐGI á hæsta stigi, og svona menn eiga ekki neina samúð hjá mér, þegar maður veit hvernig allt er í pottinn er búið...............!

Eða er það ?

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 15:24

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Engin samúð hjá mér heldur Þórainn.

Finnur Bárðarson, 26.11.2009 kl. 15:36

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Almennir skuldarar, sem ekki hafa staðið í skilum, þurfa að sæta aðför og bankinn komi og hirði allt sem hönd á festir og selji með hraði.

En um Magnús  er farið mjúkum höndum og "eignin" Toyota umboðið selt í samráði við hann. Ekki verður séð að til standi aðför að honum.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans mun eiga að sjá um söluna. Að sögn verður   áhersla  lögð á jafnræði fjárfesta.

Þegar þetta er sérstaklega tekið fram er, af fenginni reynslu, full ástæða til að efast um að svo verði.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.11.2009 kl. 16:32

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Í mínum huga er efinn alger Axel. Maður horfir á þetta sukk á hverjum degi og skilur ekki hvað er í gangi. "Í samráð við hann" manni verður flökurt.

Finnur Bárðarson, 26.11.2009 kl. 17:08

5 identicon

Finnur er Primperan hætt að virka ? 

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 23:10

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

He, he, he, Offari. Það þarf eitthvað öflugra. :)

Finnur Bárðarson, 27.11.2009 kl. 10:14

7 Smámynd: Haukur Sigurðsson

Þekki ekki til Toyota bakvið tjöldin.  Hvernig er í "pottinn búið"?  Er að finna mikinn sora í fjármögnuninnni síðustu ár eða...?  Nú var til dæmis Hekla tekin snemma, og þar var allt tiltölulega hreint og vel raðað ofan í skúffum.  Þeir réðu bara ekki við erlenda skuldsetningu, gengisfall og gjaldeyrishöft. 

En hvað er með Toyota?

Spyr sá sem ekki veit

Haukur Sigurðsson, 29.11.2009 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband