Skjaldborg um fjárglæpamennina ?

Ég sannfærist æ meir um réttmæti gagnrýni Þórs Sari á frumvarp Árna Páls Árnasonar. Það virðist hreinlega sérsniðið að þörfum fjárglæpamanna. Maður fer að spyrja sig í hvaða félagsskap hefur Árni Páll verið. Hverjir hjálpuðu honum að semja frumvarpið ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er eitthvað gruggugt við þetta.Það þyrfti að skoða hvernig hann(Árni)tengist útrásarglæpapakkinu.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 16:15

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er eitthvað sem ekki stemmir Árni

Finnur Bárðarson, 25.10.2009 kl. 16:17

3 Smámynd: Offari

Er paranojan að gera útaf við okkar þjóð?  Það er allveg sama hvað okkar ástkæra ríkistjórn reynir að gera alltaf lendir hún í einhverjum hagsmunaárekstrum.  Það verður einhver að fara að stjórna umferðini betur því svona árekstrar geta endað með manntjóni.

Offari, 25.10.2009 kl. 16:38

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Góður Offari :) Já maður verður að reyna að hafa hemil á nojunni.

Finnur Bárðarson, 25.10.2009 kl. 16:44

5 Smámynd: Benedikta E

Það er ekki ólíklegt að aðstoðarmaður ráðherrans komi eitthvað nálægt frumvarpsgerð ráðherrans !

"Aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra er samkvæmt heimildum Yngvar Örn Kristinsson - hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans.

Yngvar Örn Kristinsson er sagður líka vera ráðgjafi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar efnahags og viðskiptaráðherra er Benedikt Stefánsson - hann var í Greiningardeild Landsbankans.

Skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu er Björn Rúnar - hann var í Greiningardeild Landsbankans.

Aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra er Arnar Guðmundsson - hann var í Greiningardeild Landsbankans.

Fulltrúi Íslands í AGS er Edda Rós - er þar á vegum Samfylkingarinnar - hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans."

Þetta er nokkuð fróðlegt yfirlit ! Eða hvað ?

Benedikta E, 25.10.2009 kl. 16:47

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jú það er það óneitanlega Benedikta. Og það sem vakti líka undrun að enginn andmælti frumvarpinu á þingi svo örugglega eru fleiri blandaðir í þetta mál. Ef Þór hefur á réttu að standa.

Finnur Bárðarson, 25.10.2009 kl. 17:07

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Illt ef satt reynist, en Þór hefur sýnt að rétt sé að taka honum með fyrirvara.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.10.2009 kl. 17:27

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er rétt Axel. En þetta hljómaði skuggalega það sem hann sagði. Þetta hlýtur að skýrast.

Finnur Bárðarson, 25.10.2009 kl. 17:36

9 Smámynd: hilmar  jónsson

Nei þetta hljómar hrikalega ef satt reynist. Annars tek ég undir með Axel varðandi Þór..

hilmar jónsson, 25.10.2009 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband