Hvers vegna bara bréfin hans ?

Það er hið besta mál að Alþingisnefndin fái þetta til skoðunar. En hvað um bréf forsvarsmanna hrunaflokkanna sem steyptu öllu í glötun. Ég vildi nú gjarnan sjá tölvupósta þeirra líka. Eða er búið að finna sökudólginn sem stjórnmálaelítan getur sameinast um, og allir aðrir verða stikk frí.
mbl.is Forsetinn birtir bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

"Allt upp á borðið". Var það ekki mottóið?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.10.2009 kl. 19:01

2 Smámynd: Eygló

Hvað með Dórríði?  Manni er sagt að hún eigi valdamikla vini í flestum heimsálfum og bjóði þeim stundum heim (varð svolítið pipruð þegar hún bauð tugthússlimnum Mörtu Stjúart hingað.

Hvað með hennar bréf? Hvað hefur farið frá henni?  Hún hefur líka látið í sér heyra á opinberum vettvangi og það jafnvel um stjórnmál.

Eygló, fúl á móti (meina ekki mikið með þessu  )

Eygló, 25.10.2009 kl. 01:28

3 Smámynd: Eygló

... það heitir víst tukthús ...

Eygló, 25.10.2009 kl. 01:32

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Er ekki rannsóknarnefnd Alþingis að skoða pólitýska þáttinn í þessu öllu. Það kemur í ljós í febrúar.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 25.10.2009 kl. 11:14

5 identicon

Höfðu ekkir allir trú á útrásarvíkingunum og voru ekki allir tilbúnir að mæra þá? Það gerðu líka þeir sem sífellt agnúast út í forsetann og frúna hans. Það er eins og forsetinn megi ekki fara á klósett án þess að klíkan sé kominn á stjá til að gramsa í því sem hann lætur frá sér. Skrítið eðli það!

Matthías Kristinsson (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 14:34

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég hélt í einfeldni minni að málið væri að góma þrjótana, en ekki klappliðið. Það voru nú ansi margir í klappliðinu. En það er þægilegt að hafa bara einn blóraböggul.

Finnur Bárðarson, 25.10.2009 kl. 15:41

7 Smámynd: Lúðvík Lúðvíksson

Tók þetta án leyfis frá Cillu Ragnarsdóttur , er þetta ekki að segja okkur allt og getur verið að þetta séu síðustu púslin í hrun spilinu að vera með hrunstjórana alstaðar? Cilla Ragnarsdóttir: Samspilling hvað? Athugið hverja ríkisstjórnin hefur valið sér til fulltingis: Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra. Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra. Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra. Með svo marga bankamenn í farteskinu, og einnig hafandi í huga að fyrir kosningar kom í ljós að Samfó var sá flokkur sem hafði fengið næstmest í gjafafé frá bönkunum og eigendum þeirra; er ekki þá einfaldlega ljóst hverra hagsmuna stjórnendur Samfó, eru að leitast til með að vera? Áhugavert einnig, að allir þessir aðstoðarmenn, eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga. Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?: Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund * Actavis hf. 3.000.000 * Baugur Group hf. 3.000.000 * Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000 * Eimskipafélag Íslands 1.000.000 * Exista ehf. 3.000.000 * Eykt ehf. 1.000.000 * FL-Group hf. 3.000.000 * Glitnir 3.500.000 * Kaupþing 5.000.000 * Ker hf. 3.000.000 * Landsbanki Íslands 4.000.000 * Milestone 1.500.000 * Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000 * Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000 * Teymi ehf. 1.500.000 * Samtals yfir 500.000 36.000.000 Neyðarstjórn óskast strax -! Ég orðlaus yfir hræsninni sem Ríkisstjórn Ísland sýnir þjóð sinni !

Lúðvík Lúðvíksson, 25.10.2009 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband