Gjaldþrota þjóð

Þetta verður boðskapurinn. Best að taka ofan sólgleraugun og horfast í augu við veruleikann eins og hann mun blasa við okkur í nokkra áratugi. Unga fólkið ætti að hugsa sér til hreyfingar til Evrópu meðan tími er til og við sem eftir erum getum komið okkur fyrir í torfkofum, japlað á fjallagrösum og róið fram í gráðið með Jóni Bjarnasyni.
mbl.is Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju er verið að bíða með að tilkynna okkur þetta.? Við erum svo sem öllu vön.Held að við séum gjaldþrota Finnur.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 22:33

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ó kom til mín mín kæra  torfbæjar baðstofumenning sem lífinu hélt í víkingum þessa lands um aldir. Lifum aftur glæsta tíma.

Hinn þjóðlegi húslestur við grútartýru verður endurvakinn og öll kvöld verða blessunarlega sjónvarpslaus, tölvuleikir víkja fyrir þjóðlegum leggjum og skel.

Rómantíkin blómstrar á ný í húminu og verður alsráðandi þar sem allir liggja í lúsugri kös með tærnar á andsvæfing sínum við nasir.

Hér eftir verður aðeins étið það sem í askana verður látið. Það verður bæði lítið og rýrt.

Húslestri mun fram haldið annað kvöld eftir mjaltir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.8.2009 kl. 23:25

3 Smámynd: Offari

Nú þarf bara að endurstilla hagkerfið og byrja upp á nýtt.

Offari, 9.8.2009 kl. 00:27

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Já við erum við gjaldþrota Ragna. Axel hvernig lýst þér á að fá Jón Val í húslesturinn:) Offari: Ef það væri bara eitthvað hagkerfi til.

Finnur Bárðarson, 9.8.2009 kl. 12:51

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Og komi Birgir Ármanns og kveður rímur og stemmur þá nálgast þetta "Helvíti Dantes". Vantar bara Hjörleif Guttorms, erfitt að finna honum hlutverk.

Allt er ásættanlegt meðan nafni þinn Ingólfsson er ekki kallaður til.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.8.2009 kl. 13:54

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mér skilst nefnilega að 1. október verði okkur tilkynnt það formlega að við erum stödd í vítinu

Finnur Bárðarson, 9.8.2009 kl. 14:27

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Krúttleg framtíðarsýn...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 11.8.2009 kl. 04:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband