Morgunblaðið finnur sökudólgana

Ég ætla ekki að mæla því bót á nokkurn hátt, að fólk misnoti kerfið. En óneitanlega er þetta furðuleg áhersla í forystugrein Morgunblaðsins á 1. maí. Hvers vegna notaði blaðið ekki tækifærið og réðst harkalega að þeim sem gerðu það verkum að einstaklingar þurftu að fara á atvinnuleysisbætur yfir höfuð. Er það ekki útrásarskríllinn sem neyddi fólk út í atvinnuleysi? Hann virðist nú vera búinn að fá skjól á síðum Morgunblaðsins. Eru nú áherslur nýrra eigenda loksins að koma í ljós? Áskriftin að blaðinu er til endurskoðunar hjá mér.
mbl.is Bæturnar misnotaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Sættu þig við þá dapurlegu staðreynd að þú ert fæddur undir ólánsstjörnu og býrð í réttarríki. Fyrst eru mál rannsökuð, svo eru menn kærðir, svo er dæmt - og að lokum er refsað, svo framarlega sem menn reynast sekir.

Þú ert bara fæddur of seint, hefðir átt að vera uppi í Villta Westrinu kringum 1850. Hvað hét hann aftur þessi tryllti dómari í Westrinu sem hengdi menn að geðþótta sínum og gaf skít í allt réttlæti?  Gott ef Lukku-Láki lenti ekki í honum.

Baldur Hermannsson, 2.5.2009 kl. 17:56

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Veistu ég er þessi manngerð sem hef aldrei svindlað mér í strætó en ég er gömul sál. Það sem ég óttast eftir að Skari tók við að nú fái fjárglæframennirnir frið.

Finnur Bárðarson, 2.5.2009 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband