Bjartur í Sumarhúsum

verður næsta ríkisstjórn Íslands. Bjarni Ben forsætisráðherra sem sinnir eigin þörfum sem og annarra auðmanna, Álfheiður heldur áfram að flæma heilbrigðisstarfsmenn úr landi, Jón Bjarnason klifrar upp í volga kojuna hjá LÍÚ og Pétur Blöndal sér um lækka rostann í öryrkjum og öldruðum sem félagsmálráðherra. Landinum lokað fyrir ágangi útlendinga . Lýðurinn rekinn aftur inn í torfkofana. Gamla góða Ísland í nánd.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Finnur minn, til allrar lukku ert þú lélegur spámaður!

Björn Birgisson, 27.6.2010 kl. 20:35

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Vona það Björn, nei annars ég er vonlaus spámaður :)

Finnur Bárðarson, 27.6.2010 kl. 20:40

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Eins og ég skil stöðuna, þá virðist XD ekki eiga í mörg hús að venda hvað samstarf við aðra flokka varðar í dag, nema Framsókn...En hann er bara svo skelfilega pínku lítill...

hilmar jónsson, 27.6.2010 kl. 20:48

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mig grunar Hilmar að þeir sem vilja stóla innan VG renni hýru auga til D

Finnur Bárðarson, 27.6.2010 kl. 21:03

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég segi það og skrifa: Þann dag sem VG mun ganga í stjórnarsamband við hrunflokkin, mun ég snúa við þeim baki..

En það mun tæplega gerast Finnur.

hilmar jónsson, 27.6.2010 kl. 21:09

6 Smámynd: Björn Birgisson

Ekki smuga

Björn Birgisson, 27.6.2010 kl. 21:41

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Framtíðarsýnin er ekki fögur ef afturhaldsöflin komast aftur til valda. Hannski ekki torfkofar en mikil fátækt og örbyrgð á öllum sviðum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.6.2010 kl. 21:48

8 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Framtíðarsýnin er ekki fögur ef afturhaldsöflin komast aftur til valda. Kannski ekki torfkofar en mikil fátækt og örbyrgð á öllum sviðum. Er þá ekki best að koma sér meðan maðru á fyrir fargjaldinu aðra leiðina

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.6.2010 kl. 21:49

9 Smámynd: Björn Birgisson

Nei, bara ef maður á fyrir fargjaldinu að heiman og heim!

Björn Birgisson, 27.6.2010 kl. 21:51

10 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þegar mjúkir stólar eru í boði þá falla jafnvel hörðustu hugsjónamenn í freistni. Mér sýnist allt stefna til fortíðar.

Finnur Bárðarson, 28.6.2010 kl. 12:29

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þorsteinn Pálson orðaði þetta skýrt þegar hann sagði:

"Niðurstaðan þrengir mjög svigrúm Sjálfstæðisflokksins sem getur eftir þetta varla starfað með öðrum en Vinstri grænum"

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.6.2010 kl. 12:48

12 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég held að þetta liggi nokkuð ljóst fyrir Axel. En Hilmari er ekki skemmt við þennan skelfilega mögleika og lái ég honum ekki.

Finnur Bárðarson, 28.6.2010 kl. 14:07

13 Smámynd: Finnur Bárðarson

Á maður að drífa sig aftur til Svíþjóðar ? Hm.

Finnur Bárðarson, 28.6.2010 kl. 14:08

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég veit hvernig Hilmari líður, ég gekk í gegnum þetta ferli eftir Þingvallafundinn þeirra Geirs og Sollu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.6.2010 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband