Sérkennilegur gaskútur

Við fyrstu sýn minnir þetta mig eitthvað á grill. En það er alltaf verið að breyta umbúðum svo mér getur skjátlast. En það sem er skuggalegast er, að þeir stálu töng í Borgarnesi. Nú má ekki bíða lengur með nýtt fangelsi. Annars er þetta ein stærsta frétt mbl.is um glæpsamlegt athæfi tengt hruninu til þessa.
mbl.is Gaskútaræningjar gómaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Í ljósi alls þess sem yfir okkur Íslendinga hefur gengið undanfarna mánuði má ljóst vera að ekki er allt sem sýnist.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.3.2010 kl. 15:52

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ætli þetta verði í skýrslunni Axel ?

Finnur Bárðarson, 31.3.2010 kl. 16:00

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ertu að meina skýrsluna um lifnaðarhætti sjaldgæfu "ránfuglana" sem eru í útrýmingarhættu verði að lífsháttum þeirra vegið?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.3.2010 kl. 16:21

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Einmitt :)

Finnur Bárðarson, 31.3.2010 kl. 16:27

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Gaskútaræningjar gómaðir ! Loxins geta konur, börn og kettir í Vesturbænum hallað sér í sælli ró.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.4.2010 kl. 03:56

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Nú er yfir mér djúp öryggistilfinning Hildur

Finnur Bárðarson, 1.4.2010 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband