Finnur Ingólfsson í öryggismálin

finnu.jpgSamkvæmt frétt í DV þykir líklegt að sjálfur holdgervingur spillingarinnar ætli að "kaupa" öryggisfyritækið Securitas með fulltyngi fyrrverandi þingmanns framsóknarflokksins Guðjóns Ólafs Jónssonar. Nákrumla Framsóknar er að teygja sig upp úr ormagryfjunni til að krækja sér í síðustu bitana. Ef satt reynist trúi ég ekki öðru, en að viðskiptavinir Securitas muni keyra fyrirtækið í þrot með því að beina viðskiptum annað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Frumvarp til neyðarlaga taki gildi strax:

Meintir fjárglæframenn, og yfirlýstir siðleysingjar og græðgishólistar, sé meinað að kaupa sig inn í fyrirtæki, hvort heldur þau fyrirtæki eru rústir þeirra eigin verka eða annarra, fyrr en rannsókn og saksókn á hruni Íslands er lokið.

Þetta bann gildir þar til "hamarinn" fellur í síðasta dómsmáli hrunsins.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 20.3.2010 kl. 18:18

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Já Jenný, hvers vegna er ekki hægt að kýla á svona lög ? Þú ættir að drífa þig heim og taka af skarið. Ég skal kjósa þig í allt :)

Finnur Bárðarson, 20.3.2010 kl. 19:56

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála HEIM með Jenný

Jón Snæbjörnsson, 20.3.2010 kl. 20:23

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvað er hún að bardúsa í Klettafjöllum ? Að vísu er John Fogherty þarna næsti nágranni. :)

Finnur Bárðarson, 20.3.2010 kl. 20:47

5 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Hahahaha þið eruð krútt.  Stofna fésbókhóp "Jenný komdu heim!"  Pabbi myndi kaupa sér tölvu og net til að taka þátt í því.

Annars ligg ég nú undir feld og er að kanna nám sem mér finnst hafa verið fundið upp fyrir mig!  "Investigative Forensic Accounting", svona Horatio CSI gegn fjárglæframönnum og fraudsters.  Ekki langt síðan þessi gráða var stofnuð ofan á BS nám í viðskiptafræði. Og alls ekki margir ef nokkur með slíka gráðu á Íslandi.

Góða helgi.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 21.3.2010 kl. 00:48

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Finn bara ekkert gáfulegt að segja um hann Finn

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.3.2010 kl. 17:52

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

svo á Finnur Bifreiðaskoðun - og ef ég lýg ekki miklu þá held ég að hann eigi líka Aðalskoðun - svo þið vitið strákar hvert þig eigið að snúa viðskiptum ykkar - eða hitt þó heldur

Jón Snæbjörnsson, 22.3.2010 kl. 19:52

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jón, svo eru allir sem kaupa heitt vatn af hitaveitu Reykjavíkur, viðskiptavinir Finns og greiða honum afgjald. Alfreð Þorsteinssyni, datt það í hug einn daginn,  meðan hann var Don hjá hitaveitunni, að það væri alger óþarfi og ekkert nema kostnaðurinn fyrir hitaveituna að eiga rennslismælana, sem mæla það magn sem hver notandi kaupir.

Hann seldi því einkaaðila mælana og fyrir einhverja undarlega tilviljun var það Finnur vinur hans og flokksbróðir sem keypti mælana. Nú leigir hitaveitan mælana af Finni og greiðir honum á þriðja hundrað milljónir árlega í leigu.

Sannkallað vinarbragð hjá honum Alfredo.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.3.2010 kl. 23:05

9 Smámynd: Finnur Bárðarson

Djöfull hata ég þetta nafn FINNUR, hvar skiptir maður um ?

Finnur Bárðarson, 23.3.2010 kl. 00:51

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ekki að skipta neinu, snúðu því bara við - Runni"f" effið er fyrir smámælta

Jón Snæbjörnsson, 24.3.2010 kl. 15:11

11 Smámynd: Finnur Bárðarson

Runnif, he, he, Jón góður :) Kýli á það

Finnur Bárðarson, 26.3.2010 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband