Málaliðar hrunafólks að undibúa gagnsókn ?

nú þegar styttist í útkomu skýrslunnar miklu, sér Ögmundur Jónasson ástæðu til að stíga í stólinn og predika yfir almúganum um gildi varfærinnar nálgunar þegar kemur að þeim sem steyptu þessu landi nánast í gjaldþrot. Hann varar við því “að búa til glæpamenn úr velviljuðu og heiðarlegu fólki". Almúginn er full fær um  að draga sínar ályktanir án leiðsagnar Ögmundar eða Hannesar Hómsteins. (eyjan.is)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Það þarf engin astraltertugubbvísindamann til að sjá hvað dráttur á birtingu hrunskýrslunnar er óeðlilegur -og tortryggilegur...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 15.2.2010 kl. 16:04

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég held að það sé verið að vinsa úr feitustu bitana, Hildur

Finnur Bárðarson, 15.2.2010 kl. 16:06

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

útkoman verður væntanlega bara "pooofff" og ekkert meir - og allir ánægðir

Jón Snæbjörnsson, 15.2.2010 kl. 16:43

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég er rosalega hræddur um það Jón.

Finnur Bárðarson, 15.2.2010 kl. 16:55

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nefndarmenn hafa í dramatískum viðtölum byggt upp miklar væntingar til skýrslunnar og málað hlutina mjög dökkum litum. Reynist skýrslan síðan húmbúkk eða útþynntur kattarþvottur, mun reiði almennings án vafa beinast að nefndinni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.2.2010 kl. 17:28

6 Smámynd: Kama Sutra

Verum viðbúin!

Við fáum að sjá stórar og hnausþykkar smjörlíkisklípur fljúga um á næstunni frá Hannesum Hrunsteinum og álíka kauðum.

Látum þá ekki afvegaleiða okkur í umræðunni.

Kama Sutra, 15.2.2010 kl. 17:35

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta er vel þekkt trix, en eins og þú segir þá mun þetta bitna á nefndinni svo menn geta óáreittir haldið áfram í sukkinu. Sökudólgurinn: Nefndin.

Kama Sutra, þeir eru vel skipulagðir, og ekki skal vanmeta þá en við skulum hafa betur.

Finnur Bárðarson, 15.2.2010 kl. 17:45

8 Smámynd: Eygló

Ætli þeir séu útgrátnir og ennþá vælandi?

Eygló, 16.2.2010 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband